- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Ungmennum, með lögheimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, sem fædd eru árið 2011 og 2012, gefst kostur á að starfa í vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar.
Vinnuskólinn hefst þriðjudaginn 9. júní og stendur til og með fimmtudeginum 30. júlí.
Unnið er fjóra daga í hverri viku, mánudaga- fimmtudaga frá kl 8-14. Miðað er við að hvert barn taki samfleytt vikufrí á tímabilinu.
Megin hlutverk vinnuskólans er að veita nemendum uppbyggilegt sumarstarf, ásamt fræðslu, í öruggu starfsumhverfi. Verkefni vinnuskólans eru fjölbreytt og snúa að garðyrkju og umhirðu í sveitarfélaginu. Vinnan fer að mestu fram utandyra en áhersla er lögð á að starfsumhverfið sé hvetjandi.
Heitur matur er framreiddur í hádeginu en koma þarf með nesti á kaffitíma fyrir hádegi.
Skráningarfrestur er til 21. maí. Skráning, með nafni barns, ásamt símanr. og netfangi barns og foreldris, skal berast á netfangið sylviakaren@skeidgnup.is
Hámarksfjöldi starfsfólks í vinnuskólann eru 8 aðilar í einu. Ef fjöldi starfsfólks fer yfir þann fjölda verður starfstíminn skipulagður með það í huga.