Upptakturinn slær taktinn á ný

Upptakturinn, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna gefur ungu fólki tækifæri til að senda inn eigin tónsmíð og móta hana svo úr verði fullskapað tónverk sem flutt er í Hörpu í samstarfi við nemendur Listaháskóla Íslands og atvinnutónlistarfólk.

Tónleikar Upptaktsins fara fram á opnunardegi Barnamenningarhátíðar í Hörpu 24. apríl 2024.
Upptakturinn er árviss viðburður á vegum Hörpu sem nú er haldinn í tólfta sinn.
Alls hafa 135 tónverk verið flutt eftir um 200 þátttakendur. Árlega eru sendar inn um það bil 90 tónsmíðahugmyndir sem valnefnd velur úr.
Upptakturinn hlaut alþjóðlegu verðlaunin YAMawards fyrir besta tónlistar- og þátttökuverkefnið 2022.

Ungmenni í 5.-10. bekk geta sent inn hugmyndir að tónsmíðum í því formi sem þau kjósa, á upptöku eða með hefðbundinni eða óhefðbundinni nótnaskrift.
Áhersla er lögð á að styðja þau í fullvinnslu hugmyndar, en ungmennin sem komast áfram taka þátt í tónlistarsmiðju með nemendum í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands, auk þess að vinna að útsetningum undir leiðsögn nemenda tónsmíðadeildar. Að þessu ferli loknu er nýtt tónverk flutt af nemendum LHÍ og atvinnutónlistarfólki, tekið upp og sýnt á  RÚV.

Markmið Upptaktsins
- Sköpun:
Að stuðla að tónsköpun ungs fólks með því að hvetja börn
   og ungmenni til þess að semja eigin tónlist.
- Skráning: Að aðstoða börn og ungmenni við að fullvinna hugmyndir sínar
   í vinnusmiðju og varðveita tónlistina.
- Flutningur: Að gefa börnum og ungmennum tækifæri á að upplifa eigin tónlist
   í flutningi fagfólks við kjöraðstæður í tónlistarhúsi þjóðarinnar, Hörpu.


Reglur
- Börnum og ungmennum í 5.-10. bekk er heimilt að taka þátt í Upptaktinum og senda inn tónsmíð óháð tónlistarstíl. Þau sem komast áfram taka þátt í tónsmiðjum með nemum úr             Listaháskóla Íslands og fagfólki í tónlist.
- Lengd tónverks skal vera 1-5 mínútur að hámarki, annaðhvort einleiks eða samleiksverk fyrir allt að sjö flytjendur.
- Samstarfs-sveitarfélög þurfa að tengja verkefnastjóra við tengilið innan sveitarfélagsins sem ber ábyrgð á að koma upplýsingum sem viðkomandi fær sendar áfram til skólanna.
- Hugmyndir skulu berast ekki seinna en 21. febrúar á netfangið
upptakturinn@gmail.com með nafni höfundar, aldri, símanúmeri, tölvupóstfangi, grunnskóla, titli verks og verkinu á       nótum og/eða MP3 hljóðskrá.
Aðrar upplýsingar
- Dómnefnd:
Fagfólk situr í dómnefnd og velur 12-13 verk úr innsendum hugmyndum.
- Tónsmiðja: Verkin sem komast áfram verða fullunnin í tónsmiðju með tónsmíðanemum í Listaháskóla Íslandso og fagfólki í tónlist. Tónsmiðjur fara fram í Listaháskóla
   Íslands og Hörpu dagana 11.-19. mars 2024.
- Tónleikar: Miðvikudaginn 24. apríl 2024 verða tónverkin flutt á glæsilegum tónlekum
   í Hörpu af fagfólki í tónlist. Tónleikarnir eru hluti af Barnamenningarhátíð í Reykjavík.
- Tónsköpunarverðlaunin: Öll verkin sem flutt eru á tónleikunum hljóta tónsköpunarverðlaunin Upptakturinn 2024.
- KrakkaRúv og UngRúv: RÚV er samstarfsaðili Upptaktsins og tekur upp tónleika og
   viðtöl við þátttakendur.
Hér má sjá upptökur frá Upptaktinum árið 2022.
- Á listveitu List fyrir alla er hægt að finna upptökur frá tónleikum Upptaktsins frá
    árunum 2018-2022.

Samstarfsaðilar Upptaktsins
Upptakturinn er á vegum Hörpu í samstarfi við Barnamenningarhátíð Reykjavíkur, Tónlistarborgina Reykjavík, RÚV, Listaháskóla Íslands, Tónlistarmiðstöð Austurlands, Borgarbyggð, Garðarbæ, Kópavogsbæ og Menningarfélag Akureyrar.

Nánari upplýsingar
Á vef Upptaktsins má meðal annars sjá stutta heimildarmynd um verkefnið.
Auk Facebook og Instagram síðum Upptaktsins.
Verkefnastjóri Upptaktsins er Elfa Lilja Gísladóttir, sem veitir allar nánari
upplýsingar í gegnum
upptakturinn@gmail.com og í síma 699-6789.