Um losun rotþróa

Merki Seyruverkefnisins
Merki Seyruverkefnisins

Að gefnu tilefni vill verkefnisstjóri Seyruverkefnisins koma eftirfarandi tilkynningu á framfæri:

Seyruverkefnið sinnir ekki hreinsun á rotþróm á veturna. Við hefjum störf að vori um leið og hægt er að fara með seyru til dreifingar á uppgræðslusvæðið okkar og störfum eins langt fram eftir hausti og hægt er vegna veðurs og færðar.

Við bendum þeim sem þurfa á þjónustu að halda, þann tíma sem við getum ekki sinnt hreinsunum að hafa samband við Hreinsitækni https://hrt.is/ .

Við erum í góðu samstarfi við Hreinsitækni sem þekkir okkar svæði vel.

Hreinsitækni innheimtir sjálft, samkvæmt sinni gjaldskrá fyrir veitta þjónustu, seyruverkefnið kemur ekki að þeirri innheimtu.”