Sveitarstjórnarkosningar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 16. maí 2026: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Suðurlandi vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí 2026 fer fram sem hér segir:

  • Selfoss, Hörðuvöllum 1, Selfossi:
    11. - 13. maí, mánudag til miðvikudags, kl. 9:00 - 18:00
    Uppstigningardag
    14. maí kl. 10:00 - 14:00
    Föstudaginn 15. maí kl. 9:00 - 20:00
    Kjördag 16. maí kl. 11:00 - 15:00

Kjósandi gerir grein fyrir sér með skilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt á kjörstað og fær afhent:

  • kjörseðil
  • umslag utan um kjörseðilinn
  • fylgibréf með kjörseðlinum
  • annað umslag fyrir póstsendingu

Kjörseðill við kosningu utan kjörfundar er auður, á honum eru hvorki nöfn framboða né frambjóðenda. Kjósandi skrifar eða stimplar listabókstaf þess framboðs sem hann vill kjósa á seðilinn.

Fylgibréfið með kjörseðlinum, þar sem fram koma upplýsingar um kjósandann og hvert atkvæðið á að berast, þarf að vera undirritað af kjósanda og kjörstjóra.

Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæðinu sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Fram að kjördegi er kjörstjóra skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í póst.

Atkvæðabréfið skal senda til sveitarfélagsins þar sem kjósandi er á kjörskrá.

Kjósandi sem greiðir atkvæði hjá sýslumanni í umdæmi þar sem hann er á kjörskrá getur sett bréfið í atkvæðakassa þar.

Fyrir hönd kjörstjórnar

Helga Kolbeinsdóttir