Auglýsing frá kjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026.
Tveir framboðslistar eru í kjöri
E- Listi Uppbyggingar
- Gunnar Örn Marteinsson, ferðaþjónustubóndi, Steinsholti 2
- Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir, líffræðingur, Holtabraut 25
- Sigurður Kristmundsson, bóndi, Haga
- Sigríður Björk Marinósdóttir, aðstoðarleikskólastjóri/bóndi, Þrándarholti
- Gylfi Sigríðarson, bóndi, Steinsholti 1
- Ingvar Hersir Sveinsson, bóndi, Reykjahlíð
- Elín Anna Lárusdóttir, kennari, Holtabraut 27
- Hannes Ólafur Gestsson, ferðaþjónustubóndi/skólabílstjóri, Kálfhóli 2
- Guðmundur Arnar Sigfússon, verktaki, Vestra-Geldingaholti
- Tanja Rún Jóhannsdóttir, dýralæknir, Holtabraut 18
L-Listi Samvinnulistinn
- Haraldur Þór Jónsson, oddviti, Hraunvöllum
- Vilborg María Ástráðsdóttir, myndlistakennari, Skarði 1B
- Harpa Dís Harðardóttir, skógræktarráðgjafi, Björnskoti
- Björgvin Þór Harðarson, bóndi, Laxárdal II A
- Birna Þorsteinsdóttir, fv. bóndi, Húsatóftum 1a
- Guðmundur Árnason, fjallkóngur, Haga 1
- Oddrún Ýr Sigurðardóttir, þroskaþjálfi/garðyrkjubóndi, Holtabraut 10
- Ingvar Þrándarson, bóndi/smiður, Þrándarholti 4
- Jóhannes Hlynur Sigurðsson, skógarvörður/bóndi, Ásólfsstöðum 1a
- Bjarni Hlynur Ásbjörnsson, framkvæmdarstjóri, Hraunbrún
Kjörfundur
Kjörfundur hefst kl 9 og lýkur kl 20. Kosið verður í Þjórsárskóla í Árnesi
Kjósandi skal gera kjörstjórn grein fyrir sér á kjörstað með því að framvísa persónuskilríkjum eða á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Ef hann þannig á rétt á að greiða atkvæði samkvæmt kjörskránni afhentir fulltrúi í kjörstjórn honum einn kjörseðil.
Talning
Talning atkvæða í sveitarstjórnarkosningum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þann 16. maí 2026 fer fram í Þjórsárskóla að loknum kjörfundi, kl. 20.00.
Kjörskrá
Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi. Ef einhverjar athugasemdir eru við kjörskrá ber að snúa sér með þær til sveitarstjóra.
Kosning utan kjörfundar
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar við embætti Sýslumannsins á Suðurlandi fer fram sem hér segir:
Sýslumaðurinn á Selfossi, Hörðuvöllum 1, Selfossi: Mánudaga til föstudaga, frá kl 9:00 - 15:00.
Kjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Helga Kolbeinsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Eggert Jóhannesson