Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi til að aðstoða matreiðslumann í mötuneyti Þjórsárskóla. Mötuneyti Þjórsárskóla er staðsett í nýrri byggingu íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins í Árnesi.
Í mötuneyti Þjórsárskóla verður framleiddur matur fyrir nemendur leik- og grunnskóla og starfsfólk sveitarfélagsins.
Helstu verkefni
- Aðstoða matreiðslumann við gerð og framleiðslu matar
- Aðstoða matreiðslumann við að undirbúa mat til sendingar fyrir móttökueldhús á starfsstöðvum sveitarfélagsins.
- Útbúa morgunhressingu fyrir nemendur
- Útbúa síðdegishressingu fyrir nemendur í frístund.
- Annast gerð léttra veitinga.
- Aðstoð við matarskömmtun
- Annast uppvask
- Annast dagleg þrif á tækjum eldhúss, kælum og gólfum ásamt borðum og stólum í matsal.
- Aðstoða við gerð veitinga fyrir fundi.
- Önnur tilfallandi störf í tengslum við rekstur mötuneytis
Menntunar og hæfniskröfur:
- Þekking á gerð og framleiðslu matar.
- Reynsla af starfi í mötuneyti t.d. í skóla er æskileg.
- Nám sem nýtist í starfi er kostur.
- Áhugi á framleiðslu matar og öllu sem honum tengist.
- Áhugi á að starfa með börnum og starfsfólki sveitarfélagsins undir stjórn matreiðslumanns.
- Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Sveigjanleiki, jákvæðni og vinnugleði
- Stundvísi, snyrtimennska, samviskusemi og reglusemi
- Hreint sakavottorð