Skrifstofan lokuð frá hádegi í dag v. veðurs

Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð frá kl. 12 í dag, miðvikudaginn 31. janúar vegna veðurs. Gul veðurviðvörun er í gildi fyrir svæðið frá kl. 12.30 og hefur öllu skólahaldi í sveitarfélaginu einnig verið aflýst frá hádegi.

Við reynum að svara síma og tölvupóstum eftir fremsta megni.

Gámasvæði sveitarfélagsins er opið samkvæmt áætlun.