Samstarfssamningur við Hestamannafélagið Jökul undirritaður

Frá undirritun samningsins
Frá undirritun samningsins

Forsvarsmenn sveitarfélaganna fjögurra í Uppsveitum Árnessýslu; Bláskógabyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps komu saman ásamt forsvarsmönnum Hestamannafélagsins Jökuls í reiðhöllinni á Flúðum í dag og undirrituðu samstarfssamning.

Tilgangur samningsins er m.a. að efla samstarf sveitarfélaganna og Hmf. Jökuls, tryggja öflugt íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga og efla starf félagsins. Áhersla er á fagmennsku og þekkingu í starfi félagsins og forvarnir með fræðslu til iðkenda og starfsmanna um skaðsemi vímuefna, einelti, kynbundið áreiti, kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. Í samningnum, sem gildir út árið 2026, er kveðið á um árlegan fjárhagslegan stuðning sveitarfélaganna við félagið.

Á myndinni, sem var tekin í reiðhöllinni á Flúðum, eru forsvarsmenn sveitarfélaganna og forsvarsmenn Hmf. Jökuls.