Splunkuný líkamsræktaraðstaða
Vilt þú starfa í góðu og faglegu umhverfi með aðgang að fullbúinni líkamsræktaraðstöðu?
Til leigu er meðferðarherbergi í íþróttamiðstöð sveitarfélagsins. Rýmið hentar vel fyrir nuddara, sjúkraþjálfara og aðra viðurkennda meðferðaraðila sem vilja sinna viðskiptavinum sínum í aðstöðu þar sem góðir möguleikar eru á samspili meðferðar og hreyfingar. Aðstaðan er í nýrri íþróttamiðstöð sem staðsett er í Árnesi.
Aðstaðan býður upp á:
- Sérstakt herbergi fyrir meðferðir og viðtöl.
- Aðgang að rúmgóðum líkamsræktarsal með fullkomnum líkamsræktartækjum.
- Aðstöðu í íþróttamiðstöð með góðri þjónustu og aðgengi.
- Möguleika á að samþætta meðferðir, endurhæfingu og þjálfun.
Leitað er að sjálfstætt starfandi fagfólki með viðeigandi menntun, starfsréttindi eða viðurkenningu til að sinna meðferðarstarfsemi.
Fyrirkomulag leigu og aðgangs að líkamsræktarsal verður samið sérstaklega, með hliðsjón af umfangi starfseminnar og þörfum leigutaka.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að fá nánari upplýsingar um rýmið, leigukjör og möguleika á leigu.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir skal senda á Sylvíu Karen Heimisdóttir, sveitarstjóra, netfangið sylviakaren@skeidgnup.is eða sími 486-6104.