Réttir í Skeiða-og Gnúpverjahreppi haustið 2026

Réttað verður í Skaftholtsréttum föstudaginn 11. september og verður safnið rekið inn kl. 12.00.

Reykjaréttir eru laugardaginn 12. september og hefjast kl. 9.00.

Að réttum loknum verður Gnúpverskt fé flutt í Skaftholtsréttir og dregið þar í sundur.

 

Í fjallskilareglugerð á www.skeidgnup.is eru landeigendur hvattir til þess að hafa eftirfarandi grein reglugerðarinnar í huga á almennum smaladegi:

 

“Hverjum bónda ber að hreinsa vel heimalönd sín af öllum óskilum við hverja almenningssmölun og halda öllu fé annarra sem best til skila.”