Óskað eftir tilnefningum til hvatningaverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi

Fossá
Fossá

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)  óska eftir tilnefningu til samfélags- og hvatningarverðlauna á sviði menningarmála á Suðurlandi.

Um er að ræða samfélagslega viðurkenningu sem Samtök sunnlenskra sveitarfélaga mun veita formlega á ársþingi sínu í október 2021. 

Tilnefningar skal senda á netfangið menningarverdlaun@sass.is eigi síðar en mánudaginn 18. október nk.

Markmiðið með verðlaununum er að vekja jákvæða athygli á menningartengdum verkefnum á Suðurlandi, en mikil gróska hefur verið á þeim vettvangi undanfarin ár. Verðlaunin má veita einstaklingi, fyrirtæki, stofnun, söfnum hópi og/eða verkefni. Verðlaunin eru hugsuð sem hvatning á sviði menningar en menning er víða hornsteinn hvers samfélags og skiptir íbúa og gesti á Suðurlandi miklu máli. 

Í tilnefningunni skal hafa eitthvað af eftirfarandi atriðum til hliðsjónar:

  • Hefur tilnefndur gefið jákvæða mynd af Suðurlandi og eða ákveðnu svæði á Suðurlandi?
  • Hefur tilnefndur stuðlað að þátttöku íbúa og/eða gesta á menningarviðburðum á Suðurlandi?
  • Hefur tilnefndur vakið sérstaka athygli á menningararfi Sunnlendinga?
  • Hefur tilnefndur aukið samstöðu og virkni í tengslum við menningu meðal íbúa?
  • Hefur tilnefndur skapað nýtt menningartengt verkefni sem vakið hefur eftirtekt?
  • Hefur tilnefndur með einhverjum hætti stuðlað að aukinni menningu hjá börnum og ungmennum?

Veitt verður viðurkenning sem og peningaverðlaun sem nýta á til áframhaldandi menningarstarfs á Suðurlandi.