- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi með ástríðu fyrir matargerð til að starfa í ný standsettu mötuneyti sveitarfélagsins sem staðsett verður í nýrri byggingu íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins í Árnesi.
Viðkomandi þarf að vera skapandi i hugsun og ófeimin að koma með nýjar hugmyndir, barngóður og jákvæður.
Í mötuneyti sveitarfélagsins verður framleiddur matur fyrir nemendur leik- og grunnskóla og starfsfólk sveitarfélagsins. Áætlaðir matarskammtar á dag eru um 200 talsins skólaárið 2026-2027.
Sveitarfélagið vill leggja áherslu á að framreitt sé heilsusamlegt mataræði sem samanstendur af næringaríkum mat frá náttúrunnar hendi. Í sveitarfélaginu og nærumhverfi þess eru margir frumframleiðendur og matarkista af fjölbreyttu hráefni til hollrar matargerðar.
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi búa um 680 íbúar. Um er að ræða dreifbýlt sveitarfélag með tvo byggðakjarna, Árnes og Brautarholt. Þjórsárskóli, grunnskóli sveitarfélagsins, er staðsettur í Árnesi og leikskólinn leikholt er staðsettur í Brautarholti. Sveitarfélagið, sem er umvafið náttúrufegurð, er í um klst. akstursfjarlægð frá Reykjavík. Hjá sveitarfélaginu starfa um 60 manns. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar ásamt rökstuðningi fyrir hæfni til að sinna starfinu.
Um er að ræða 100% starf.
Öllum umsóknum verður svarað eftir að umsóknarfrestur er liðinn og unnið hefur verið úr umsóknum.
Umsóknir óskast sendar á sylviakaren@skeidgnup.is ásamt ferilskrá og kynningarbréfi. Nánari upplýsingar veitir Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri, netfang: sylviakaren@skeidgnup.is
Öll hvött til að sækja um.
Vakin er athygli á stefnu Skeiða- og Gnúpverjahrepps að jafna hlutfall kynja í störfum fyrir sveitarfélagið og samræmingu milli einkalífs og fjölskyldu.