Laus störf í Leikholti

Leikskólinn Leikholt í Brautarholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi leitar að drífandi leikskólakennurum og leiðbeinendum í 50% - 100% starfshlutföll út skólaárið.

Leikholt er þriggja deilda leikskóli. Á hverri deild eru um 7 – 16 börn. Á leikskólanum eru um 40 nemendur frá aldrinum 1. árs til 6 ára.

Meginverkefni leikskólakennara og leiðbeinenda eru að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara æskilegt í stöður leikskólakennara.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta á stígi B2 samkvæmt samevrópska matskvarðanum

Hæfniskröfur leikskólaliða og leiðbeinenda:

  • Gerð er krafa um leikskólaliða menntun í stöður leikskólaliða.
  • Vinnusemi og stundvísi og góð meðmæli þar um.
  • Færni í að vinna náið með öðrum og að fjölbreyttum verkefnum.
  • Hæfni til að miðla þekkingu sinni á íslensku eftir því sem við á (miðað er við kunnáttu á stigi B2 samkvæmt evrópska matskvarðanum).

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélaga. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvarðanir um ráðningar hafa verið teknar. Um er að ræða tímabundin störf út skólaárið.

Umsóknir skal senda á netfangið leikholt@leikholt.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Greta Ólafsdóttir, leikskólastjóri, í síma 486-5586.

Rétt er að vekja athygli á því að við ráðningu er heimilt að sækja upplýsingar úr sakaskrá. Umsækjandi má hvorki hafa hlotið refsidóm vegna brota á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga (kynferðisbrot), nr. 19/1940 frá því að hann var sakhæfur (15 ára) né hafa hlotið refsidóm fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, á síðastliðnum fimm árum.