Íbúakönnun vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaga

Gaman saman
Gaman saman

Könnuninni verður hægt að svara til  og með 17. apríl 2017Öll sveitarfélögin í Árnessýslu vinna nú saman að sviðsmyndagreiningu í tengslum við mögulega sameiningu sveitarfélaganna. Ráðgjafarsvið KPMG sér um framkvæmd verkefnisins en gert er ráð fyrir að vinnunni verði lokið nk. haust og í framhaldinu verði niðurstaða verkefnisins tekin til umræðu í sveitarstjórnum í sýslunni. 
Liður í undirbúningsvinnunni er að senda út rafræna könnun til að fá fram sjónarmið íbúa á svæðinu og því viljum við biðja þig að taka þátt í þessari könnun. Hún er nafnlaus og eru svör ekki rekjanleg til þeirra einstaklinga sem taka þátt í henni. 
 

Hlekkur á könnun: http://arnessysla-ibuar.questionpro.com/

Ef einhverjar spurningar vakna vegna könnunarinnar má hafa samband við Stefán Þór Helgason hjá KPMG (shelgason@kpmg.is) 

Með fyrirfram þökkum 
Ráðgjafarsvið KPMG