Covid -19 - hertar aðgerðir - lokun skrifstofu og sundlauga

Horft til austurs.
Horft til austurs.

Ákveðið hefur verið að loka sundlaugunum  frá og með 23. mars. Gámasvæðin eru lokuð sömuleiðis en hægt er eins og venjulega að fara inn með heimilissorp í minniháttar umbúðum á öllum tímum sólarhringsins. Ef fólk vill fara í stórtiltektir hjá sér er bent á að  hægt er  að fá gám heim á hlað í þrjá daga. - frítt.  Hafið samband við skrifstofuna um það.

Grunnskóli og leikskóli starfa eftir sérstöku skipulagi og eru opnir. Mötuneyti skólanna er opið en eingöngu fyrir nemendur og starfsfólk sveitarfélagsins. Nokkrir eldri borgarar fá heimsendan mat.  Eins og kunnugt er hefur fjölgað verulega í hópi þeirra sem greinst hafa með Covid- 19 veiruna hér á landi. Til að gæta varúðar var ákveðið að loka skrifstofu sveitarfélagsins fyrir almennri móttöku frá og með 16 mars, um óákveðinn tíma. Starfsfólk skrifstofunnar mun þó standa vaktina engu að síður.  Síminn verður opinn á hefðbundum tímum. 486-6100. Erindum er svarað með símtölum og tölvupóstum.  skeidgnup@skeidgnup.is  

Nýtt vaktnúmer  HSU er  1700 

Auglýsing frá almannavörnum höfuðborgarsvæðisins 23.mars 2020 

  • Allar fjöldasamkomur þar sem fleiri en 20 manns koma saman eru óheimilar meðan takmörkunin er í gildi.  Á það jafnt við hvort sem fólk kemur saman í opinberum rýmum eða einkarýmum.
  • Hvar sem fólk kemur saman og í allri starfsemi skal tryggt að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga.
  • Öllum vinnustöðum eða þar sem önnur starfsemi fer fram skal vera tryggt að ekki séu fleiri en 20 einstaklingar í sama rými. Þessar takmarkanir eiga einnig við um almenningssamkomur og aðra sambærilega starfsemi.
  • Sérstakar reglur gilda um matvöruverslanir og lyfjabúðir. Þar verður heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu, að því gefnu að hægt sé að halda a.m.k. 2 metra fjarlægð milli einstaklinga. Ef matvöruverslanir eru yfir 1.000 m2 er heimilt að hleypa til viðbótar einum einstaklingi fyrir hverja 10 m2 þar umfram en þó aldrei fleiri en 200 viðskiptavinum.

Lokun samkomustaða og starfsemi vegna sérstakrar smithættu

  • Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum, skemmtistöðum, spilasölum, spilakössum og söfnum skal lokað meðan á þessum takmörkunum stendur.
  • Starfsemi og þjónusta sem krefst mikillar nálægðar milli fólks eða skapar hættu á of mikilli nálægð er óheimil. Þar undir fellur allt íþróttastarf og einnig allar hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur og önnur sambærileg starfsemi. Þetta á einnig við um íþróttastarf þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér, s.s. skíðalyftur.

Þrif og sótthreinsun almenningsrýma

  • Í öllum verslunum, opinberum byggingum og á öðrum stöðum innandyra þar sem umgangur fólks er nokkur skal þrifið eins oft og unnt er, sérstaklega algenga snertifleti.
  • Við alla innganga skal tryggja aðgang að sótthreinsandi vökva fyrir hendur og eins víða um rými og talin er þörf á, s.s. við afgreiðslukassa í verslunum.

Undanskilið ákvörðun um hertar takmarkanir

  • Sérstök auglýsing sem áður hefur verið birt gildir um takmörkun skólastarfs. Þó skal fylgja fjarlægðarmörkum um tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga eftir því sem það á við og mögulegt er, einkum gagnvart eldri börnum.
  • Takmörkunin gildir ekki um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu sem ekki getur beðið.
  • Takmörkunin tekur hvorki til alþjóðaflugvalla og -hafna, né til loftfara og skipa.

Undanþágur

  • Heilbrigðisráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkun á samkomum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins eða til verndar lífs eða heilsu manna eða dýra.
  • Sóttvarnalæknir getur veitt undanþágu frá sóttkví vegna samfélagslegra ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast vegna lífsbjargandi starfsemi, s.s. raforku, fjarskipta, samgangna, heilbrigðisstarfsemi, löggæslu, sjúkraflutninga og slökkviliða.
  • Allar undanþágur sem veittar hafa verið vegna sóttkvíar falla úr gildi og þurfa þeir sem slíkt hafa fengið að sækja um að nýju sé þörf á því.

Heilbrigðisráðherra mun birta í Stjórnartíðindum nýja auglýsingu um takmörkun á samkomum í stað þeirrar eldri sem fellur þar með úr gildi. Gildistími verður óbreyttur, þ.e. til 12. apríl næstkomandi. Takmörkunin tekur til landsins alls. Stjórnvöld endurmeta takmörkunina eftir því sem efni standa til, hvort heldur til að aflétta henni fyrr, eða framlengja gildistímann.

 

 

AHS

 

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Deildarstjóri almannavarna höfuðborgarsvæðisins
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

(+354) 8626375  (+354) 528 3000  thorak@shs.is  http://shs.is  Skógarhlíð 14, 105 Reykjavík, Ísland