Auglýsing um skipulagsmál

Kvöldsól í júlí - Myndin tengist efni fréttarinnar ekki á nokkurn hátt
Kvöldsól í júlí - Myndin tengist efni fréttarinnar ekki á nokkurn hátt

Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga eftirfarandi deiliskipulagsáætlunar:

Reykir L166491; Frístundabyggð; Deiliskipulag – 2411063
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum 7. október 2026 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir Reyki, L166491, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er auglýst að nýju þar sem meira en eitt ár er liðið frá því að athugasemdafrestur vegna fyrri auglýsingar rann út og meginforsendur deiliskipulagsins eiga sér stoð í gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Deiliskipulagið tekur til Reykja, L166491, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Innan skipulagssvæðisins eru afmarkaðar fjórar frístundalóðir austast í landi jarðarinnar, að Sandlæk.


Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Málið er skipulagsmál í auglýsingu frá 15.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 27.11.2026.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.
Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita