Auglýsing um skipulagsmál

AUGLÝSINGAR UM SKIPULAGSMÁL

Bláskógabyggð, Skeiða- og Gnúpverjahreppur

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga aðalskipulagsbreytinga eftirfarandi skipulagsáætlana:

  1. Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2512021

Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 6. maí 2026 að kynna breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap. Umsagnir og athugasemdir bárust við kynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.

Samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt niðurstaða sveitarstjórnar vegna eftirfarandi máls:

  1. Húsatóftir 2A L191340; Skilmálabreyting VÞ5; Aðalskipulagsbreyting – 2604037

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 6. maí 2026, að auglýsa niðurstöðu sveitarfélagsins er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi á skilmálum fyrir verslunar og þjónustusvæði VÞ5 í gildandi Aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029, í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með breytingunni er verið að fjölga gistiplássum og fjölda gesta innan verslunar- og þjónustusvæðis VÞ5 fyrir Húsatóftir IIa ásamt því að breyta staðfangi í Húsatóftir 5. Engin breyting er á aðkomu eða afmörkun svæðis. Engin viðbótaruppbygging er fyrirhuguð heldur en einungis verið að innrétta núverandi byggingar og nýta þær betur. Gistirýmum fjölgar úr 10 í 18, og gestafjöldi hækkar úr 20 í 36.

 

Ofangreindar skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is.

 

Mál 1. innan auglýsingar er skipulagsmál í kynningu frá 13. maí 2026 með athugasemdarfresti til og með 4. júní 2026.

Mál 2. er tilkynning um niðurstöðu sveitarstjórnar vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi.

 

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita