Móttaka framboðslista vegna sveitarstjórnarkosninga í Skeiða og Gnúpverjahreppi 16. maí 2026

Framboðsfrestur vegna sveitastjórnarkosninga, sem fram fara 16. maí 2026 rennur út kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026. Kosið verður til sveitarstjórnar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Framboðslistar skulu hafa borist yfirkjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps áður en framangreindur framboðsfrestur rennur út.

Yfirkjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps tekur á móti framboðsgögnum föstudaginn 10. apríl frá kl. 11.00 – 12.00 í fundarherbergi á skrifstofu hreppsins í Árnesi. Í framhaldi er fundur um yfirferð framboðslista.

Framboðslistunum skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi gefið samþykki sitt fyrir því að nöfn þeirra séu á listanum, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift. Gæta skal þess að tilgreina með skýrum hætti fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans og lögheimili, þannig að enginn vafi leiki á því hver sé í kjöri.

Eyðublað fyrir framboðslista er að finna á vef landskjörstjórnar.

Framboðslistum skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um stuðning, að lágmarki 20 meðmælendur og að hámarki 40 meðmælendur. Hver kjósandi má einungis mæla með einum lista við hverjar kosningar. Frambjóðendur geta ekki verið meðmælendur eigin framboðs.

Þá skal með hverjum framboðslista fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um hverjir séu umboðsmenn listans. Upplýsingar um nafn, fæðingardag, netfang og símanúmer umboðsmanns skal fylgja tilkynningunni ásamt skriflegu samþykki hans. Samþykkið getur verið undirritað eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.

Sýnishorn af tilkynningu um framboð og umboðsmenn má finna á vef landskjörstjórnar.

Nánari upplýsingar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista má finna í reglugerð nr. 254/2024 og þá má einnig finna nánari upplýsingar og eyðublöð vegna skila á framboðum á vef landskjörstjórnar.

Árnesi, 27. mars 2026

Yfirkjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Helga Kolbeinsdóttir formaður

Eggert Jóhannesson

Helga Guðlaugsdóttir