Starfsfólk óskast í mötuneyti Þjórsárskóla

Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að jákvæðum og kraftmiklum einstaklingi  til að aðstoða matreiðslumann í mötuneyti Þjórsárskóla. Mötuneyti Þjórsárskóla er staðsett í nýrri byggingu íþróttamiðstöðvar sveitarfélagsins í Árnesi.

Í mötuneyti Þjórsárskóla verður framleiddur matur fyrir nemendur leik- og grunnskóla og starfsfólk sveitarfélagsins. 

Helstu verkefni

  • Aðstoða matreiðslumann við gerð og framleiðslu matar
  • Aðstoða matreiðslumann við að undirbúa mat til sendingar fyrir móttökueldhús á starfsstöðvum sveitarfélagsins.
  • Útbúa morgunhressingu fyrir nemendur
  • Útbúa síðdegishressingu fyrir nemendur í frístund.
  • Annast gerð léttra veitinga.
  • Aðstoð við matarskömmtun
  • Annast uppvask
  • Annast dagleg þrif á tækjum eldhúss, kælum og gólfum ásamt borðum og stólum í matsal.
  • Aðstoða við gerð veitinga fyrir fundi.
  • Önnur tilfallandi störf í tengslum við rekstur mötuneytis

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Þekking á gerð og framleiðslu matar.
  • Reynsla af starfi í mötuneyti t.d. í skóla er æskileg.
  • Nám sem nýtist í starfi er kostur.
  • Áhugi á framleiðslu matar og öllu sem honum tengist.
  • Áhugi á að starfa með börnum og starfsfólki sveitarfélagsins undir stjórn matreiðslumanns.
  • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Sveigjanleiki, jákvæðni og vinnugleði
  • Stundvísi, snyrtimennska, samviskusemi og reglusemi
  • Hreint sakavottorð