Fjallskil á Gnúpverjaafrétti 2022

Rekið inn í almenninginn
Rekið inn í almenninginn

 

 

Lagt verður upp í Sandleit miðvikudaginn 31. ágúst. og í eftirsafn  miðvikudaginn. 14. september.

Guðmundur Árnason mun mun stjórna smalamennskum þetta haustið, bæði sem fjallkóngur í fjallsafni og foringi í eftirsafni. Fjallskilasjóður sér fyrir mat og heyi í allar leitir.

Skaftholtsréttir eru föstudaginn 9. september og verður safnið rekið inn kl. 11.00.

Fjallmenn eru beðnir að merkja föggur sínar vel og hafa samband við trússara og láta vita hvar föggur þeirra  verða.  

Ef gulu fjallmannavestin liggja heima hjá einhverjum eru þeir vinsamlegast beðnir um að skila þeim sem fyrst.

 

Reykjaréttir eru laugardaginn 10. september og hefjast kl. 9.00. að réttum loknum verður féð flutt í Skaftholtsréttir og dregið þar í sundur.

 

Landeigendur athugið:

 

Almennur smaladagur er 24. september og skilarétt í Skaftholtsréttum þann 25. september. Í fjallskilareglugerð á www.skeidgnup.is  eru landeigendur hvattir til þess að  hafa eftirfarandi grein reglugerðarinnar í huga á almennum smaladegi: Hverjum bónda ber að hreinsa vel heimalönd sín af öllum óskilum við hverja almenningssmölun og halda öllu fé annarra sem best til skila.”  

 

   Sandleit:                                                     

Þjórsárholt: fjallkóngur Guðmundur Árnason

Eystra-Geldingaholt: Jón Bragi Bergmann

Steinsholt 1, Trúss: Gylfi Sigríðarson

 

Norðurleit:

Steinsholt 1: Óttar Már Bergmann

Steinsholt 1: Hrafnhildur Jóhanna B. Sigurðardóttir

Steinsholt 1: Sveinn Sigurðarson

Eystra-Geldingarholt: Anna Birta Schougaard

Trúss: Inga María Guðmundsdóttir og Jónas Jónmundsson

 

 

Dalsá:

Stóri Núpur: Stefanía Einarsdóttir

Stóri Núpur: Valgerður Einarsdóttir

Skarð: Sigurður Unnar Sigurðsson

Skarð: Magnús Arngrímur Sigurðsson

Gunnbjarnarholt: Haukur Arnarsson

E-Geldingaholt:  Einar Hugi Ólafsson

E-Geldingaholt: Sigurþór Ingólfsson

Þrándarholt: Ingvar Þrándarson

Þrándarholt: Björn Hrannar Björnsson

Brúnir: Lilja Loftsdóttir

 Laxárdalur: Linda Ósk Högnadóttir

Laxárdalur: Högni Jökull Atlason

Ásar: Jón Hákonarson

Steinsholt 1: Gígja Sigurðardóttir

Minni Mástunga: Finnbogi Jóhannsson

Laxárdalur, truss: Atli Eggertsson,

 

Aukamenn að Dalsá:     Baldur Már Jónsson,  Brynjar Már Björnsson   

     Eftirsafn:

Þjórsárholt: Guðmundur Árnason foringi.

Steinsholt l: Sigurður Loftsson

Stóra-Mástunga: Haukur Haraldsson

Þrándarholt: Björn Axel Guðbjörnsson

Fossnes: Sigrún Bjarnadóttir

Fossnes: Bjarni Arnar Hjaltason

Ljóskolluholt: Birkir Þrastarson

Skarð: Ástráður Unnar Sigurðsson

Hæll 1: Helga Höeg Sigurðardóttir

 

Óráðstafað:

Tveir ríðandi í eftirsafn allan tímann og einn ríðandi Gljúfurleit – Hólaskógur 17. september.

Trúss í eftirsafn

Matráður Dalsá

Tveir smalar Dalsá

 

Eftir að búið er að draga fyrsta innrekstur í Skaftholtsréttum verður gert 30 mínútna kaffihlé og næsti rekstur rekinn inn eftir það!