Spurðist oddviti fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Fundargerð 334. fundar skipulagsnefndar
Eystra-Geldingaholt 1 L166543; Rauðaberg A (millispilda); Staðfest mörk lóða og breytt heiti lóðar – 2609004
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 15.05.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun nýrrar lóðar. Merkjalýsing þessi er í nokkrum liðum.
Um ræðir aðgerðir sem tengdar eru jörðinni Eystra-Geldingaholti 1 L166543.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt L166644 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt L166645 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 1 L190878 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar. Einnig er óskað eftir því að stofnuð verði ný lóð (Árgerði), stærð 5000 m2 úr upprunalandi Eystra - Geldingaholts 1 L190878.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 1 L193425 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 5 L194376 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar. Einnig er óskað eftir því að Eystra - Geldingaholt 5 L194376 stækki um 1978,6 m2 og kemur stækkunin úr Eystra - Geldingaholti L193425 (millispilda sem sameinast L194376).
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 1 L193425 fái staðfangið Rauðaberg.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 5 L194376 fái staðfangið Rauðaberg 1.
Óskað er eftir að Klúka L166546 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar. Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt 1 L194247 verði hnitsett og gerð verði breyting á mældri stærð lóðarinnar.
Óskað er eftir að Eystra- Geldingaholt lóð L186175 verði hnitsett.
Óskað er eftir að Eystra - Geldingaholt lóð L191709 verði hnitsett.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og staðfanga breytingu.
Kílhraun land L191805; Úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði; Nýjar heitavatnsborholur; Aðalskipulagsbreyting - 2610003
Lögð er fram lýsing aðal- og deiliskipulagsbreytingar fyrir Kílhraun land, L191805, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í breytingunni felst að afmarkað verði um 12,2 ha iðnaðarsvæði vegna fyrirhugaðrar heitavatnsöflunar, þar með talið nýrra heitavatnsborhola og mannvirkja og lagna þeim tengdum.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir framlagða skipulagslýsingu með fimm atkvæðum til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. og 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 29.
Kálfhóll 2 L166477; Kálfhóll 2E; Stofnun lóðar og breyting á staðfangi. – 2610012
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 08.04.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóðina Kálfhól 2E, 17951,9 m2 úr landeigninni Kálfhóli 2 L166477 í Skeiða- og Gnúpverjahr. Einnig er óskað eftir því að breyting verði gerð á staðfanginu Kálfhóli L166513 að það verði Kálfhóll 2D.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og nafnabreytingu.
2. Endurskoðun aðalskipulags Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Lagt fram bréf frá HMS er varðar endurskoðun á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Samkvæmt ákvæði 1. mgr. 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 metur sveitarstjórn hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins í upphafi nýs kjörtímabils. Samkvæmt 18. gr. skipulagslaga geta sveitarfélög óskað eftir að fá greiddan hluta kostnaðar við gerð eða endurskoðun svæðis- og aðalskipulags úr Skipulagssjóði.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fara í fulla endurskoðun á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í samræmi við 3.tl. 18. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 óskar sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps eftir 75% kostnaðarhlutdeild í endurskoðun aðalskipulags enda er Skeiða- og Gnúpverjahreppur víðfeðmt og fámennt sveitarfélag þar sem skipulagsvinna er umfangsmikil vegna orkumannvirkja, hálendissvæða, náttúruverndar og uppbyggingar.
3. Ósk um lóðaskipti við Vallarbraut
Lagt fram erindi frá Tré og múr ehf, kt. 520523-2190 þar sem óskað er eftir skiptum lóðinni Vallarbraut 11-13 og fá í staðinn lóðina Vallarbraut 1-5, sem hefur verið auglýst til umsóknar á heimasíðu sveitarfélagsins
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að Tré og múr ehf., kt. 520523-2190, skili lóðinni Vallarbraut 11-13 og fá úthlutað í staðinn lóðina Vallarbraut 1-5.
4. Umsókn um lóðaréttindi – Setrið
Skeiða- og Gnúpverjahreppur auglýsti þann 18. september 2026 eftir leigutökum til að nýta lóðina Setrið L240005 innan þjóðlendunnar Flóa- og Skeiðamannaafréttar. Lóðin er 14.620 m2 að stærð. Svæðið er innan friðlands Þjórsárvera.
Umrædd lóð er á þjóðlendu (Flóa- og Skeiðamannaafrétti) skv. úrskurði óbyggðanefndar frá 21. mars 2002 í máli nr. 7/2000. Í ljósi þess þarf leyfi sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps til að nýta land og landsréttindi á svæðinu, sbr. 3. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlenda og afrétta. Jafnframt þarf samþykki forsætisráðuneytisins, þar sem umrædd nýting á að vara lengur en til eins árs, sbr. 2. mgr. 3. gr. sömu laga.
Ein umsókn barst og var hún frá Ferðaklúbbnum 4x4, kt. 701089-1549.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta lóðinni Setrið L240005 til Ferðaklúbbsins 4x4, kt. 701089-1549, og felur sveitarstjóra að ganga lóðarleigusamningi í samráði við forsætisráðuneytið.
Almenn mál
5. Sala á Heiðargerði 7
Lagt fram samþykkt kauptilboð og kaupsamningur vegna Heiðargerði 7, fasteignanr. F220-2211.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagt kauptilboð og kaupsamning og er Sylvíu Karen Heimisdóttir, sveitarstjóra, kt. 290882-5679, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita kauptilboðið og kaupsamninginn, að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast sölunni á Heiðargerði 7, fasteignanr. F220-2211, sem og að undirrita öll nauðsynleg lánaskjöl, veðskjöl og önnur tengd skjöl vegna lántöku, þ.m.t. skjöl sem heimila eða fela í sér veðsetningu eignarinnar til tryggingar skuldbindingum kaupanda.
6. Frístundastyrkur Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Lagt fram erindi E-listanns þar sem lagt er til við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 verði skoðað að hækka frístundastyrk úr 80.000 í 120.000 kr. á hvert barn. Markmiðið er að bregðast við rýrnun kaupmáttar styrksins og létta kostnað barnafjölskyldna vegna þátttöku í íþrótta-, lista- og tómstundastarfi. Áður en endanleg ákvörðun er tekin þarf að liggja fyrir kostnaðarmat sem byggist á gögnum sveitarfélagsins. Lagt er til að sveitarstjóra verði falið að láta vinna slíkt mat og leggja fram möguleika á fjármögnun áður en fjárhagsáætlun 2027 verður tekin til afgreiðslu.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að vinna kostnaðarmat á breytingunni og að það verði lagt fram í fyrirhugaðri vinnu við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
7. Tilnefning í framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands
Skipa þarf fulltrúa í framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Anný Ingimarsdóttur, deildarstjóra velferðarþjónustu Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings sem fulltrúa í framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands.
8. Erindi frá Kvennaathvarfinu
Lagt fram erindi frá Kvennaathvarfinu þar sem óskað er eftir fjárstuðningi fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa beiðni Kvennaathvarfsins um styrk í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
9. Ósk um stuðning við starfsemi Samtaka um karlaathvarf
Lagt fram erindi frá samtökum um karlaathvarf þar sem óskað er eftir fjárstuðningi fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa beiðni samtaka um karlaathvarf um styrk í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
10. Styrkbeiðni frá Stígamótum
Lagt fram erindi frá Stígamótum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa beiðni Stígamóta um styrk í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
11. Styrkumsókn til starfsemi Sigurhæða
Lagt fram erindi frá Sigurhæðum þar sem óskað er eftir fjárstuðningi fyrir árið 2027.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að vísa beiðni Sigurhæða um styrk í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
12. Flokkun sjö vindorkuverkefna í samráðsgátt
Verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hefur flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
13. Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga - til umsagnar í samráðsgátt
Innviðaráðuneytið hefur birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Í tillögunum eru sett fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma.
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að fela oddvita að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.
14. Til umsagnar 156. mál frá nefnda- og greiningarsviði skrifstofu Alþingis
Lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis er varðar 156. mál - Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).
15. Til umsagnar 88. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis er varðar 88. mál - Tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.
16. Til umsagnar 59. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis er varðar 59. mál - Frumvarp til laga
um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).
17. Til umsagnar 202. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Lagt fram erindi frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis er varðar 202. mál - Loftslagslög
18. Skýrsla oddvita
Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.
19. Fundargerð 1. fundar loftslags- og umhverfisnefndar
Fundargerð lögð fram til kynningar.
20. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-267
Fundargerð lögð fram til kynningar.
21. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa 26-266
Fundargerð lögð fram til kynningar.
22. Fundargerð stjórnar SVÁ frá 6. október 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Sveitarstjórn þakkar forstöðumanni Skóla- og Velferðarþjónustu Árnesþings sérstaklega fyrir skýra og greinargóða skýrslu.
23. Fundargerð 3. fundar stjórnar UTU bs.
Fundargerð lögð fram til kynningar.
24. Fundargerð 96. fundar stjórnar Bergrisans
Fundargerð lögð fram til kynningar.
25. Fundargerð frá fundi ferðaþjónustunnar og SAF 5. október 2026
Fundargerð lögð fram til kynningar.
26. Fundargerð 97. fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
27. Fundargerð 1.003 fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
28. Fundargerð 1.004 fundar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundi slitið kl. 11:50
Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 4. nóvember kl. 9.00, í Árnesi.
Fundargerð undirrituð rafrænt.