Sveitarstjórn

82. fundur 21. janúar 2026 kl. 09:00 - 11:35 Árnes
Nefndarmenn
  • Haraldur Þór Jónsson oddviti
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Gunnar Örn Marteinsson
  • Axel Á. Njarðvík.
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Skýrsla oddvita á 82. sveitarstjórnarfundi

Oddviti fer yfir þau verkefni sem hafa verið í vinnslu frá síðasta sveitarstjórnarfundi.

Rakel Theodórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi Uppsveitanna, kom inn á fundinn og kynnti hlutverk og starfssemi byggðaþróunarfulltrúa.

2. Yfirdráttarheimild

​​​Sveitarfélagið hefur haft 50 milljóna króna yfirdráttarheimild á veltureikningi sínum allt sl. ár sem nýttur hefur verið sem hluti af stýringu á sjóðsstreymi í rekstri sveitarfélagsins. Núverandi heimild rennur út 2. febrúar nk. og óskað er eftir að sveitarstjórn samþykki framlengingu til 12 mánaða.​

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja yfirdráttarheimild að upphæð 50 milljónir og felur sveitarstjóra að óska eftir framlengingu á yfirdráttarheimild til 12 mánaða hjá Landsbankanum.

 

3. Húsnæðisáætlun 2026

Umræður urðu um málið. Afgreiðslu máls frestað til næsta fundar.


Vilborg Ástráðsdóttir víkur af fundi.

 

4. Viðauki við samning um hönnun íþrótta- og fjölnota mannvirkis í Árnesi

Lagður fram viðauki við samning um hönnun íþrótta- og fjölnota mannvirkis í Árnesi, en upphaflegur samningur var undirritaður 24. september 2024 og gilti til 31. desember 2025. Í viðaukanum er samningur framlengdur fram að verklokum sem eru áætluð sumarið 2026.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fjórum atkvæðum framlagðan viðauka og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.

 

Vilborg Ástráðsdóttir kemur aftur inn á fund.

5. Viðauki við samning um byggingar- og verkstjórn vegna byggingar íþrótta- og fjölnotamannvirkis í Árnes

​​​Lagður fram viðauki við samning um byggingu- og verkstjórn vegna íþrótta- og fjölnota mannvirkis í Árnesi, en upphaflegur samningur var undirritaður 24. september 2024 og gilti til 31. desember 2025. Í viðaukanum er samningur framlengdur fram að verklokum sem eru áætluð sumarið 2026.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagðan viðauka og felur sveitarstjóra að undirrita samninginn.

 

6. Skipan í skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Sigríður Björk Gylfadóttir hefur verið sl. kjörtímabil verið varamaður í skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Óskað er eftir því af E listanum að varamaður í hennar stað verði Bjarni Másson varamaður í skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Sveitarstjórn samþykkir með fimm atkvæðum að Bjarni Másson verði varamður í skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps út kjörtímabilið 2022-2026.

 

7. Erindi frá Fjallkóngi Gnúpverja afréttar

​​​Lagt fram erindi frá fjallkóngi Gnúpverja þar sem óskað er eftir því að gera breytingar á fyrirkomulagi Skaftholtsrétta á þann hátt að hætt verði að reka sauðfé fram í Skaftholtsréttir og að réttað yrði á Búrfellstúni í Þjórsárdal. Í erindinu kemur fram ítarlegur rökstuðningur fyrir breytingunum með tilliti til breyttra tíma og dýravelferðar.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þakkar fjallkóngi fyrir erindið og tekur undir áhyggjur fjallkóngs varðandi öryggismál og dýravelferð. Sveitarstjóra er falið að boða afréttamálanefnd Gnúpverja til fundar um erindið á næsta sveitarstjórnarfundi. Einnig telur sveitarstjórn mikilvægt að fá umsögn frá Matvælastofnun um mögulegar breytingar með tilliti til dýravelferðar og felur sveitarstjóra að senda erindið til umsagnar Matvælastofnunar.

 

8. Samstarfsyfirlýsing vegna innleiðingar snjalltunnuverkefnis í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Lögð fram drög að samstarfsyfirlýsingu milli sveitarfélagsins og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) um samstarf vegna innleiðingar snjalltunnuverkefnis í Skeiða- og Gnúpverjahreppi Tilgangur samstarfsins er að útfæra og innleiða tilrauna- og þróunarverkefni um notkun snjalltunna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps tekur jákvætt í samstarfið og samþykkir með fimm atkvæðum framlagða samstarfsyfirlýsingu. Sveitarstjóra falið að undirrita samstarfsyfirlýsinguna.

 

9. Umsókn um iðnaðarlóð í Árnesi - Þingbraut 15

​Lögð fram umsókn frá Vélaleigu Suðurlands ehf. um iðnaðarlóðina Þingbraut 15 (L236660).

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta lóðinni Þingbraut 15 (L236660) til Vélaleigu Suðurlands ehf, kt. 490216-2350.

 

10. Fulltrúar í Farsældarráð Suðurlands

​Lagt fram erindi frá verkefnastjóra Farsældarráðs Suðurlands þar sem óskað er eftir tilnefningu frá Skeiða- og Gnúpverjahreppi um aðalfulltrúa og varafulltrúa í Farsældarráð Suðurlands.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum að skipa Matthildi E. Vilhjálmsdóttir sem aðalfulltrúa og Ingibjörgu Maríu Guðmundsdóttir sem varafulltrúa.

 

11. Styrkbeiðni frá ME félag Íslands

​Lagt fram bréf frá ME félagi Íslands þar sem óskað er eftir styrk til að vinna umbrot, hönnun, prentun, dreifingu, upptöku o.fl. á kynningarefni.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps þakkar fyrir erindið en telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.

 

12. Úttekt á starfsemi Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Málinu frestað til næsta fundar.

 

13. Bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028 - 2033 og

uppfærsla 9. kafla vatnaáætlunar 2022 - 2027

​Lagt fram til kynningar fyrir sveitarstjórn frá Umhverfis- og orkustofnun bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033 og uppfærsla á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027.

 

14. Fundargerð 316. fundar skipulagsnefndar

Stóra-Hof 1 L166601; Fækkun lóða og breyttar stærðir;

Deiliskipulagsbreyting – 2512048. Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Stóra-Hofs 1 L166601 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í breytingunni felst að lóðin Hátún 1 er felld niður og lóðin Hátún 2 er stækkuð.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

 

Skógarlundur L236998; Uppbygging ferðaþjónustu; Deiliskipulag - 2512005

Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Skógarlundar L236998 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í deiliskipulaginu felst að landið verði skilgreint fyrir gistiþjónustu í smáhýsum ásamt þjónustubyggingum. Heimild er fyrir 70 gistihúsum og 192 gistirýmum, ásamt þjónustuhúsum fyrir starfsemina. Hámarksbyggingarmagn er 3,000 m2 fyrir svæðið. Deiliskipulag þetta er unnið samhliða breytingu á aðalskipulagi fyrir svæðið.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir deiliskipulagið með fimm atkvæðum og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

 

15. Fundargerð 317. fundar skipulagsnefndar

Sandlækur 2 L166591; Verslunar- og þjónustusvæði; Aðalskipulagsbreyting – 2512021

Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett verður inn nýtt verslunar- og þjónustusvæði sem nær yfir Sandlæk 2 L166591, Sandlæk I land 4 L212043, Sandlæk 1 lóð 5 L217870, Sandlæk 2 lóð L209688 og Sandlæk 1 L201306. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Markmið með breytingunni er að heimila gistingu fyrir allt að 40 gesti á um 3 ha svæði. Föst búseta verður áfram á svæðinu og heimilað verður að halda áfram búskap.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Stóra-Mástunga 1 L166603; Efnistökusvæði; Aðalskipulagsbreyting - 2511005

Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2017-2029. Í breytingunni felst að sett er inn ný náma í landi Stóru-Mástungu. Svæðið er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í gildandi aðalskipulagi. Með breytingunni er heimiluð allt að 45.000 m3 efnistaka á 2 ha svæði.

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með fimm atkvæðum aðalskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

16. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-240

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

17. Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 25-241

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

18. Gátlisti til að efla fjölbreytni í sveitarstjórnum

Lagður fram til kynningar fyrir sveitarstjórn gátlisti til að efla fjölbreytni í sveitarstjórnum frá Jafnréttisstofu.

 

19. Fundargerð 340. fundar stjórnar SOS

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

20. Fundargerð 341. fundar stjórnar SOS

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

21. Fundargerð 342. fundar stjórnar SOS

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

22. Fundargerð 631. fundar stjórnar SASS

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

23. Fundargerð 632. fundar stjórnar

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

24. SASS / Fundaáætlun 2026

Fundaáætlun lögð fram til kynningar.

 

25. Fundargerð 90. fundar stjórnar Bergrisans

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

26. Reglur Bergrisans um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlað fólk

Reglur um notendastýrða persónuþjónustu lagðar fram til kynningar.

 

27. Fundargerð 991. fundar stjórnar Sambands

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

28. Fundargerð 132. fundar stjórnar UTU

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

29. Fundargerð 5. fundar fagnefndar SVÁ

Teknir voru til umfjöllunar liðir 1-3 í fundargerð fagnefndar SVÁ.

  1. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps staðfesta með fimm atkvæðum tillögu að reglum um akstursþjónustu aldraða.
  1. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps staðfesta með fimm atkvæðum tillögu að viðmiðunarreglum vegna einstaklingsþjónustu.
  1. Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps staðfesta með fimm atkvæðum tillögu að hækkun fjárhagsaðstoðar og breytingum á gjaldskrá.

Fundargerð að öðru leyti lögð fram til kynningar.

 

30. Fundargerð stjórnar SVÁ frá 7. janúar 2026

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

31. Fundargerð 20. fundar skólanefndar Hrunamannahrepps

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

32. Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu 2025

Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu nr. 25-33 lagðar fram til kynningar.

 

33. Fundargerð 9. fundar framkvæmdaráðs Almannavarna Árnessýslu

Fundargerð lögð fram til kynningar.

 

Fundi slitið kl. 11:35.

Næsti fundur sveitarstjórnar ákveðinn miðvikudaginn 4. febrúar kl. 9.00, í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt. 

Skjöl