Skólanefnd

30. fundur 22. október 2026 kl. 15:15 - 17:10 Árnes
Nefndarmenn
  • Vilborg María Ástráðsdóttir
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Guðmundur Árnason
  • Sigurður Kristmundsson
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
  • Anna Greta Ólafsdóttir leikskólastjóri
  • Gestur Einarsson fulltrúi foreldra
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir fulltrúi foreldra í gegnum Teams fjarfundarbúnað
  • Helga Guðlaugsdóttir fulltrúi kennara í Leikholti.
  • Elín Anna Lárusdóttir fulltrúi kennara í Þjórsárskóla boðaði forföll.
Starfsmenn
  • Haraldur Þór Jónsson ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Haraldur Þór Jónsson

Formaður setti fundinn og spurðist fyrir hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo reyndist ekki vera.

 

Mál til umfjöllunar:

1. Málefni Félagsmiðstöðvarinnar Ztart

Starf félagsmiðstöðvarinnar fer vel af stað. Það er búið að vera núna opið í 2 skipti fyrir miðstigið. Það hefur verið góð mæting og mættu um 16 börn í bæði skiptin. Við fyrstu opnun var pizzakvöld og opin dagskrá, áhersla hefur verið að kynnast krökkunum og nýja starfsfólkinu okkar. Síðasta fimmtudag var svo halloween bíómyndadagur.

Unglingastigið hefur verið að mæta vel. Hafa verið þrjár opnanir og alltaf flott mæting. Síðasta fimmtudag var halloween bíómyndadagur einnig og mættu þá yfir helmingur unglingastigs.

Veturinn fer því vel af stað.

Ungmennafélag Gnúpverja gaf félagsmiðstöðinni nýja fótbolta sem munu nýtast vel í starfinu framundan.

Umræður urðu um málið.

2. Starfsáætlun Þjórsárskóla

Meðfylgjandi starfsáætlun eru gögn vegna jarðskjálftaáætlunar, neyðar- og rýmingaráætlun, óveðursáætlun og viðtalsbók vegna starfsmannaviðtala.
Starfsáætlun er lögð fram til samþykktar.

Skólanefnd samþykkir framlagða starfsáætlun Þjórsárskóla fyrir starfsárið 2026-27.

3. Skýrsla skólastjóra Þjórsárskóla

Guðmundur skólastjóri fór yfir starf Þjórsárskóla í september og október.

Vegna óveðurs 14. október var skólabyrjun frestað til kl. 10 í samræmi við óveðursáætlun skólans og gekk framkvæmdin vel. Í starfsmannamálum kom fram að auglýst hefur verið eftir deildarstjóra og kennara á mið- og unglingastigi þar sem fyrirhuguð ráðning gekk ekki eftir.

Áfram er unnið að innleiðingu aðalnámskrár grunnskóla, einkum nýs matskvarða. Niðurstöður lesfimiprófa í september sýna að flestir árgangar eru að meðaltali við miðgildi og nálægt landsmeðaltali. Fyrstu lotuskil skólaársins voru 5. október og lögð er áhersla á regluleg samskipti við foreldra um námsframvindu og verkefni nemenda.

Unnið er að innleiðingu farsældarlaga og sóttu starfsmenn vinnufund með BOFS um verklag og samþættingu þjónustu. Nemendaverndarráð hefur jafnframt hafið reglubundið starf á skólaárinu.

Fyrstu smiðjudagar vetrarins voru haldnir í samstarfi við Bláskógaskóla og Flúðaskóla og tókust vel. Kennarar sóttu kennaraþing Kennarafélags Suðurlands og starfsfólk tók þátt í samstarfsfundi skóla í Uppsveitum og Flóa. Samstarf Leikholts og Þjórsárskóla er einnig að hefjast með gagnkvæmum heimsóknum skólahóps leikskólans og yngsta stigs grunnskólans.

Stefnt er að því að hefja íþróttakennslu í nýja íþróttahúsinu á næstu dögum og ríkir mikil tilhlökkun meðal nemenda og starfsfólks.

Meðal verkefna fram undan eru þemadagar, heimsóknir rithöfunda, fræðsludagur fyrir foreldra og heimsókn miðstigs í Listasafn Árnesinga með stuðningi verkefnisins List fyrir alla.

 

4. Þróunarsjóður skólasamfélags Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Skólanefnd minnir á Þróunarsjóðinn og hvetur kennara og aðra aðila sem tengjast skólasamfélaginu eindregið til að nýta þau tækifæri sem sjóðurinn býður upp á.

Skólasamfélagið býr yfir mikilli þekkingu, reynslu og sköpunarkrafti sem mikilvægt er að hlúa að og skapa svigrúm til að þróa áfram. Þróunarsjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði starfsfólks, nýsköpun í kennsluháttum og fjölbreytt þróunarverkefni sem efla faglegt starf og stuðla að öflugu og framsæknu skólasamfélagi.

Skólanefnd hvetur fólk til að koma hugmyndum sínum á framfæri, hvort sem um er að ræða smærri þróunarverkefni, nýjar leiðir í námi og kennslu eða samstarfsverkefni milli skóla í nágrannasveitarfélögunum. Mikilvægt er að góðar hugmyndir fái tækifæri til að verða að veruleika og að þekking og reynsla sem skapast nýtist skólasamfélaginu í heild.

Skólanefnd hvetur áhugasama til að kynna sér reglur sjóðsins og senda inn vandaðar umsóknir þar sem markmið verkefna og væntanlegur ávinningur fyrir skólastarfið koma skýrt fram.

 

5. Drög að starfsáætlun Leikholts

Lögð eru fram drög að starfsáætlun Leikholts. Eftir umræður er lagt til að starfsáætlunin verði lögð fram til staðfestingar.

Skólanefnd staðfestir starfsáætlun Leikholts fyrir árið 2026-27 með breytingum er varðar fulltrúa í stjórn foreldrafélags Leikholts.

 

6. Skýrsla skólastjóra Leikholts

Anna Greta leikskólastjóri fór yfir helstu þætti skólastarfsins í september og október. Tímabilið hefur einkennst af fjölbreyttu faglegu starfi, þróunarverkefnum og áframhaldandi vinnu við að efla gæði skólastarfsins, samræma starfshætti og styrkja samstarf milli deilda.

Áfram er lögð rík áhersla á snemmtæka íhlutun, málörvun og læsi. Innleiðingarteymi verkefnisins Snemmtæk íhlutun hefur tekið til starfa og vinnur að áframhaldandi þróun og innleiðingu þess. Meðal verkefna er uppfærsla handbókar, þar sem meðal annars verður unnið að innleiðingu LANÍS-matstækisins, málstefnu og móttökuáætlunar fyrir fjöltyngd börn. Einnig verður farið yfir nýtingu handbókarinnar í daglegu starfi, í samráði við kennsluráðgjafa og talmeinafræðing.

K-PALS kennsla er að hefjast hjá elsta árgangi leikskólans og unnið er að markvissari nýtingu bókasafnsins til lestrar og málörvunar. Jafnframt er áhugi á að þróa sameiginleg verkefni á sviði vísinda, skynjunar og tækni, meðal annars út frá áhuga barnanna sjálfra. Þegar hefur verið unnið með vísindatengdar tilraunir á Vörðufelli með góðum árangri. Unnið er að undirbúningi umsókna í Þróunarsjóð skólasamfélagsins vegna verkefna sem meðal annars tengjast vísindum, skynjun, tónlist og K-PALS.

Kynningardagur leikskólans var skipulagður 15. október með það að markmiði að veita foreldrum innsýn í fjölbreytt faglegt starf deildanna, kennsluaðferðir og áherslur leikskólans. Undirbúningur foreldraviðtala stendur yfir og er unnið að skráningum í TRAS og færniskema. Flest viðtölin eru fyrirhuguð í nóvember en fyrirkomulagið tekur mið af aldri barnanna og skipulagi deilda. Leikskólastjóri hefur jafnframt fundað með stjórn foreldrafélagsins, meðal annars um athugasemdir félagsins við fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá leikskólans.

Áhersla hefur verið lögð á að efla samstarf starfsfólks, upplýsingaflæði og samræmingu vinnubragða milli deilda. Sérstaklega hefur verið rætt um mikilvægi virkrar þátttöku starfsfólks í leik barna og stuðnings við samskipti og félagsfærni þeirra. Teknar hafa verið upp sameiginlegar söngstundir deildanna og starfsfólk sótti sameiginlegan starfsþróunardag leikskóla á starfssvæði SVÁ í október.

Samstarf Leikholts og Þjórsárskóla heldur áfram samkvæmt endurskoðuðu fyrirkomulagi skólaheimsókna. Gert er ráð fyrir tveimur heimsóknum elsta árgangs í grunnskólann fyrir áramót og reglulegri heimsóknum eftir áramót. Einnig er unnið að aðlögun nýrra barna og fylgst markvisst með líðan, þroska og stuðningsþörfum barna á deildunum.

Öryggis- og aðbúnaðarmál hafa verið til umfjöllunar, meðal annars vegna mengunar af kattaskít í öryggissandi á leiksvæði, eftirlits með útisvæði og nauðsynlegra lagfæringa á hurðum og aðgengi. Einnig hefur verið farið yfir viðbragðs- og rýmingaráætlanir og þörf á úrbótum í merkingum á söfnunarstað.

Á næstu vikum verður áfram unnið að innleiðingu snemmtækrar íhlutunar, þróun faglegra verkefna, foreldraviðtölum, skólaheimsóknum og umsóknum í Þróunarsjóð skólasamfélagsins, ásamt áframhaldandi vinnu við skipulag og öryggismál leikskólans.

 

Fundi slitið kl. 17:10.

Næsti fundur skólanefndar verður fimmtudaginn 26. nóvember 2026, kl. 15.15 í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.