Skólanefnd

29. fundur 01. október 2026 kl. 15:15 - 16:40 Árnes
Nefndarmenn
  • Vilborg María Ástráðsdóttir
  • Haraldur Þór Jónsson
  • Guðmundur Árnason
  • Sigurður Kristmundsson
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
  • Gígja Sigurðardóttir í fjarveru Önnu Gretu Ólafsdóttur leikskólastjóri
  • Elín Anna Lárusdóttir fulltrúi kennara í Þjórsárskóla
  • Gestur Einarsson fulltrúi foreldra í Þjórsárskóla
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir fulltrúi foreldra í Leikholti í gegnum Teams fjarfundarbúnað
  • Helga Guðlaugsdóttir fulltrúi kennara í Leikholti.
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir sveitarstjóri

 

1. Félagsmiðstöðin Ztart- skýrsla sveitarstjóra

Sveitarstjóri fór yfir mannauð félagsmiðstöðvarinnar Ztart. Sveinn Atli Magnússon mun leiða starfið skólaárið 2026-2027 og með honum verður Pálína Ósk.

Opið verður einn dag í viku, á fimmtudögum til að byrja með, annars vegar verður opið fyrir miðstig, 5-7 bekk og hins vegar unglingastig 8-10. bekk.

Mikilvægt er að stuðla að því að félagsmiðstöðin sé góður vettvangur þar sem ungmennin okkar geta hist, átt samskipti og tekið þátt í fjölbreyttu félagsstarfi í öruggu og jákvæði umhverfi þar sem þeir sjálfir, eignast vini og geta tekið þátt í verkefnum og viðburðum.

Samstarf félagsmiðstöðva er einnig mikilvægur þáttur í þróun félagsmiðstöðvastarfs. Með því að gefa starfsfólki og ungmennum tækifæri til að vinna saman verðir starfið fjölbreyttara og fleiri tækifæri skapast til þátttöku og að þróa starfið áfram. Það er því mikilvægt að starfinu sé skapaður slíkur grundvöllur í stefnumörkun og fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

Skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að taka málið áfram til vinnslu og umfjöllunar.

 

2. Þjórsárskóli- starfsáætlun skólaárið 2026-2027

Guðmundur Finnbogason lagði fyrir drög að starfsáætlun Þjórsárskóla skólaárið 2026-2027.

 

3. Þjórsárskóli- skýrsla skólastjóra

Guðmundur Finnbogason fór í skýrslu sinni yfir fyrstu vikur skólaársins. Undirbúningsdagar hjá stjórnendum hófust fljótlega eftir verslunarmannahelgi. Kennarar hófu svo störf 17. ágúst og byrjuðu þeir starfsárið á námskeiði til undirbúnings fyrir Heillaspor. Nemendum í fyrsta bekk og foreldrum þeirra var boðið í samtal og heimsókn í undirbúningsvikunni en með því fá þau tækifæri til að sjá skólann og hitta kennara áður en aðrir nemendur koma í hús. Þetta fyrirkomulag hefur reynst afar vel. Hefðbundin skólasetning var svo hinn 21. ágúst í Árnesi.

10 bekkur fór í upphafi skólaársins í útskriftarferð til Berlínar. Ferðin gekk mjög vel og var nemendum hrósað fyrir það hvað þau voru jákvæð og kurteis og voru bæði kennarar og nemendur mjög ánægð með ferðina. Skólinn fór svo saman í útilegu inn í Þjórsárdal um miðjan september. Sú ferð gekk mjög vel, veður var gott og var mikið gengið um.
Skólinn er núna fullmannaður og eru nemendur skólans orðnir 69 talsins.

 

Guðmundur Árnason vék af fundi

Helga Guðlaugsdóttir og Gígja Sigurðardóttir komu inn á fundinn.

 

4. Leikholt - skýrsla leikskólastjóra

Staðgengill leikskólastjóra, Gígja Sigurðardóttir, fór yfir skýrslu leikskólastjóra. Í lok ágúst fóru Haukur Vatnar og Matthildur á K-PALS námskeið í lestrarfærni. Búið er að færa bókasafn leikskólans yfir í gamla bókasafnshúsið og eru þau Haukur og Matthildur með K-Pals tíma þar fyrir nemendur auk þess sem aðrir nemendur hafa farið þangað í lestrarstund. Starf skólaársins er að hefjast að fullu eftir aðlögunartíma og móttöku nýrra nemenda. Framkvæmdir á leikskólalóð er í fullum gangi og mikið er búið nýta nýja leiksvæðinu í haust. Mikil eftirvænting er þó eftir að fá heildarleiksvæðið í notkun.

 

Fundi slitið kl. 16.40.

Næsti fundur skólanefndar verður fimmtudaginn 22. október 2026, k. 15.00 í Árnesi.

Fundargerð undirrituð rafrænt.