Skólanefnd

28. fundur 20. ágúst 2026 kl. 15:00 - 17:00 Brautarholt
Nefndarmenn
  • Vilborg María Ástráðsdóttir
  • Guðmundur Árnason
  • Sigurður Kristmundsson
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
  • Ingvar Þrándarsson
  • Anna Greta Ólafsdóttir leikskólastjóri
  • Helga Guðlaugsdóttir fulltrúi kennara. 
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir fulltrúi foreldra
Fundargerð ritaði: Guðmundur Árnason

Formaður setti fundinn og spurðist fyrir hvort athugasemdir væru við fundarboð, svo reyndist ekki vera.

 

Mál til umfjöllunar:

1. Ársskýrsla leikskólastjóra vegna starfsársins 2025-2026

Skólanefnd lýsir ánægju með þá fagmennsku, sveigjanleika og ábyrgð sem einkennt hefur starf Leikholts á skólaárinu, ekki síst í ljósi fjölgunar barna, áskoranir og breytingar í starfsmannahaldi og aukins álags á húsnæði og skipulag.

Af ársskýrslu leikskólastjóra má sjá að þrátt fyrir krefjandi aðstæður hefur tekist að halda skýrri áherslu á þarfir, líðan og þátttöku barnanna, jafnframt því sem unnið hefur verið markvisst að þróun faglegs starfs, snemmtækri íhlutun, öryggismálum, samstarfi við foreldra og samfellu milli skólastiga svo fátt eitt sé nefnt.

Skólanefnd tekur undir að áframhaldandi vöxtur leikskólans kalli á skýra og langtímamiðaða umgjörð um mönnun, húsnæði og skipulag. Þess vegna er mikilvægt að á komandi skólaári verði byggt áfram á þeim sterka faglega grunni sem fyrir er, með aukinni kerfisbundinni eftirfylgni og skýrri umbótaáætlun.

Skólanefnd þakkar fyrir yfirgripsmikla, ítarlega og greinargóða skýrslu leikskólastjóra um starf leikskólans síðastliðinn vetur. Skýrslan gefur mjög góða innsýn í áskoranir og þau viðfangsefni sem starf leikskólans tekst á við í raun og veru. Skýrslan er afar góður grunnur til að byggja á og grundvallarupplýsingar sem nýtast vel í þeim tilgangi að festa gott og faglegt starf leikskólans í sessi.

 

2. Ársskýrsla stoðþjónustu Leikholts

Af ársskýrslu deildarstjóra stoðþjónustu Leikholts má glöggt sjá hversu fjölþætt og umfangsmikið starfið er og hve mikilvægu hlutverki snemmtæk íhlutun, markviss málörvun og sveigjanlegur stuðningur gegnir til að mæta ólíkum þörfum barna og stuðla að farsæld þeirra, líðan og þroska.

Skólanefnd vill lýsa ánægju með þá fagmennsku, ábyrgð og framsýni sem einkennir starf stoðþjónustunnar og telur mikilvægt að á komandi skólaári verði áfram tryggt nægilegt svigrúm til að þróa starfið, festa innleidd verkefni í sessi og bregðast tímanlega og markvisst við þegar þörf fyrir stuðning kemur fram.

Skólanefnd þakkar fyrir greinargóða og upplýsandi skýrslu um eitt af mikilvægustu málefnum leikskólastarfsins. Mikilvægt er að tryggja stoðþjónustunni örugga og góða starfsaðstöðu innan leikskólans og að starfshlutfall deildarstjóra stoðþjónustu, sem og mönnun stoðþjónustunnar til framtíðar, taki mið af áframhaldandi fjölgun barna og vaxandi umfangi verkefna.

 

3. Matreiðsla og áherslur við gerð matsseðils fyrir leikskólann

Erindi frá foreldrafélaginu Leiksteini varðandi mikilvægi góðs matar og næringar.

Umræður urðu um matarmenningu í leikskóla og grunnskóla. Í kjölfar umræðnanna er lagt til að farið verði í heildstæðari stefnumörkun með þennan mikilvæga þátt í daglegu lífi leik- og grunnskólabarna sem og alls starfsfólks.

Skólanefnd leggur til að Skeiða- og Gnúpverjahrepp marki heildstæða stefnu um matarmenningu í skólasamfélaginu. Markmiðið er að skapa sameiginlega sýn á mat, næringu og máltíðir í leik- og grunnskóla þar sem heilbrigði, vellíðan, gæði, matarmenning og sjálfbærni eru höfð að leiðarljósi.

Lagt er til að settur verði á laggirnar vinnuhópur sem móti tillögur að slíkri stefnu. Í hópnum verði fulltrúar frá skólasamfélaginu og mötuneyti, auk annarra eftir því sem við á. Hlutverk hópsins verði að fara yfir núverandi fyrirkomulag, draga fram það sem vel er gert og leggja fram raunhæfar tillögur að sameiginlegum áherslum til framtíðar.

Við mótun stefnunnar verði meðal annars horft til þess að börnum standi til boða hollur, næringarríkur og fjölbreyttur matur sem styður við þroska, vellíðan og námsgetu. Áhersla verði lögð á gott hráefni, vandaða matargerð, fjölbreytni og að nýta eftir föngum hráefni úr nærumhverfi.

Sjálfbærni verði einnig meðal grunnþátta við mótun stefnunnar. Þar verði meðal annars horft til góðrar nýtingar hráefnis, markvissra aðgerða til að draga úr matarsóun og aukinnar vitundar barna og starfsfólks um verðmæti matar, uppruna hráefnis og tengsl matarframleiðslu við náttúru og umhverfi.

Nú þegar nýtt fyrirkomulag hefur tekið við og matreiðsla fyrir skólasamfélagið er undir eigin starfsemi sveitarfélagsins skapast nú gott tækifæri til að móta skýra og heildstæða stefnu um matarmenningu. Núna er aukið svigrúm til að hafa bein áhrif á hráefnisval, matseðla, matargerð, umgjörð máltíða og þær áherslur sem unnið er eftir.

Vinnuhópurinn geti nýtt þetta tækifæri til að móta sameiginlega sýn sem byggir á því góða starfi sem þegar er unnið og setur skýrar, raunhæfar og framsýnar áherslur fyrir matarmenningu skólasamfélagsins til framtíðar.

Tillögur að aðilum í vinnuhóp: Sylvía Karen Heimisdóttir, Róbert Gunnarsson, Anna Greta Ólafsdóttir, Guðmundur Finnbogason, fulltrúi foreldra grunnskólabarna og fulltrúi foreldra leikskólabarna

 

4. Skýrsla skólastjóra Leikholts

Leikskólastjóri sagði fundargestum frá upphafi starfsársins en útlit er fyrir barnmargan vetur. Deildirnar eru núna fjórar og umsóknir um leikskóladvöl eru enn að tínast inn. Fjöldi barna í leikskólanum er í dag 52 og stefnir í fast að 60 eftir því sem líður á veturinn.

Bókakostur leikskólans verður færður í gamla bókasafnshúsið (fyrrum leikskóla) og verður það húsnæði nýtt til bókalesturs, samverustunda og þess háttar starfsemi. Er sú tilhögun í samráði við alla aðra starfsemi sem er nú þegar í húsinu.

Salur leikskólans er einnig nýttur fyrir alls konar starf sem tilheyrir leikskóladeginum - ekki einungis íþróttatengda hreyfingu.
Leikskólinn er ekki fullmannaður af starfsfólki eins og staðan er í dag, bæði vegna hlutastarfa og annarra þátta en það horfir til betri vegar.

Aðlögun gengur vel og er alltaf ánægjulegur og skemmtilegur þáttur í leikskólastarfseminni.

Leikskólastjóri hrósar starfsfólki leikskólans fyrir góðan og gefandi starfsanda sem og hrósar foreldrum fyrir mjög gott samstarf.

 

Skólanefnd lauk fundi með því að fara í skoðunarferð um nýja leiksvæðið.

 

Fundi slitið kl. 17:00.

Næsti fundur skólanefndar verður fimmtudaginn 24. september 2026, k. 15.00 í Árnesi.

 

Fundargerð undirrituð rafrænt.