- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
1. Fundarsetning
Vilborg Ástráðsdóttir, formaður skólanefndar, setti fund kl. 15:00 og bauð fólk velkomið. Hún
spurðist fyrir um það hvort einhverjar athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki.
Á fundinn voru mætt: Vilborg Ástráðsdóttir, Bjarni H. Ásbjörnsson, Ingvar Hjálmarsson,, Anna
María Flygenring, Guðmundur Finnbogason, Elvar Már Svansson, Kristín Gísladóttir í forföllum
Ingibjargar Maríu Guðmundsdóttur, Gestur Einarsson og Sylvía Karen Heimisdóttir. Sigríður Björk
Marínósdóttir boðaði forföll.
Formaður óskaði eftir því að bæta við máli á dagskrá: Framkvæmd vegan hurða í Leikskóla. Það var
samþykkt.
2. Málefni félagsmiðstöðvarinnar Ztart
Elvar Már fór yfir starfið frá síðasta skólanefndarfundi. Starfið hefur verið fjölbreytt að vanda. Mikið
verið úti að leika þar sem veðrið var svo gott. Börnin eru ánægð með lengri opnunartíma og mæting
hefur verið mjög góð. Ztart og Zero fara saman á Samfestinginn sem er unglingaball í Laugardalshöll
í Reykjavík þar sem unglingar af öllu landinu hittast. Aðeins hefur borið á hnökrum í
samræmingu samfellu á frístund og skólastarfi. Bæta þarf upplýsingaflæði á milli þjálfara til að koma
því til foreldra. Unnið er að því að skipuleggja frístund og skólaakstur fyrir næsta skólaár.
Umræður urðu um málið.
3. Málefni Þjórsárskóla - Skólapúls
Guðmundur Finnbogason, skólastjóri, fór yfir niðurstöður foreldrapúlsins sem er hluti af innra mati
skólans.
Fram kemur að 30 af 31 foreldri sem svöruðu skólapúlsinum eru ánægðir með hvað nememdum líður
vel í skólanum og að skólinn mætir vel þörfum þeirra. Bæta má þó upplýsingar til foreldra um
námslegan árangur nemenda. Hluti foreldra telur sig vera lítið upplýst um stefnu skólans og
skólanámskrá.
Umræður urðu um málið.
Anna Greta Ólafsdóttir og Helga Guðaugsdóttir komu á fundinn kl. 15:29.
4. Málefni Þjórsárskóla - Drög að tengibyggingu
Vilborg Ástráðsdóttir, formaður, lagði fram og skýrði grunnteikningar af tengibyggingu á milli
Þjórsárskóla og nýju íþróttamiðstöðvarinnar. Hönnun er á lokastigi og fáein atriði ókláruð.
Skólanefnd er ánægð með útfærsluna.
Umræður urðu um málið.
Aníta Hrund Vilhjálmsdóttir kom á fundinn kl 15:51 í forföllum Ingibjargar Sæunnar Jónsdóttur.
5. Málefni Þjórsárskóla - opið hús í verknámshúsi
Formaður kynnti áform um opið hús í verknámshúsinu og íþróttahúsinu þann 6. maí til kynningar
fyrir íbúa.
Umræður urðu um málið.
6. Málefni Þjórsárskóla - skýrsla skólastjóra
Skólastjóri lagði fram skýrslu sína um starfið frá síðasta skólanefndarfundi.
Starf skólans hefur gengið vel á tímabilinu og fjölbreytt verkefni verið í gangi. Nemendur í 7. bekk
tóku þátt í Stóru upplestrarkeppninni með góðum árangri, bæði í undankeppni og lokakeppni.
Skíðaferð féll niður vegna veðurs, en til skoðunar er að fara reglulega með eldri nemendur í slíkar
ferðir norður í land.
Unnið hefur verið áfram að innleiðingu farsældar og kortlagningu úrræða í sveitarfélaginu.
Skólastjóri sótti Google for Education námskeið með það að markmiði að bæta utanumhald
Chromebook-tækja. Starfsmannasamtöl hafa farið fram með nýrri viðtalshandbók („Gerum gott
betra“), sem hefur skilað góðum umræðum og jákvæðri þróun.
Niðurstöður úr Skólapúlsinum sýna að nemendum líður almennt vel og ánægja er með starf skólans,
en foreldrar kalla eftir skýrari upplýsingum um námsstöðu barna sinna. Unnið verður að úrbótum á
því sviði. Auglýst hefur verið eftir starfsfólki fyrir næsta skólaár og ráðningarferli er í gangi.
Skólinn hlaut styrk úr endurmenntunarsjóði Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna verkefnisins
„Samsköpun í námi“. Skólastjóri sótti einnig ráðstefnu um öryggismál í skólum. Framundan eru m.a. leikhúsferð unglingastigs og hefðbundin vorverkefni.
Í námi og kennslu eru fjölbreytt verkefni í gangi á öllum stigum, m.a. lestrarátak á yngsta stigi,
samþætt þemavinna og aukin ritunarvinna á unglingastigi. Áhersla er lögð á undirbúning vorferða þar
sem nemendur nýta nærumhverfi og náttúru í náminu.
Skólastjóri kynnti næstu Smiðjur í samstarfi grunnskólanna í Uppsveitunum sem haldnar verða á
Borg í Grímsnesi. Úrvalið af smiðjum er mjög fjölbreytt og spennandi.
Umræður urðu um málið.
7. Mál til kynningar - tillögur til tilnefninga Íslensku menntaverðlaunanna.
Formaður kynnti bréf, dags. 17. apríl 2026 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi hvatningu
til skólanefndar að senda inn tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna. Tillögur þurfa að berast
fyrir 1. júní 2026.
Umræður urðu um málið.
8. Málefni til kynningar
Formaður kynnti ráðningu nýs forstöðumanns SVÁ, sem ráðinn er tímabundið til eins árs.
9. Sameiginleg málefni- Þróunarsjóður
Formaður frestaði málinu til næsta fundar.
10. Sameiginleg málefni - skýrsla formanns
Formaður lagði fram skýrslu sína varðandi störf sín frá síðasta fundi. Verkefnin ganga sinn vanalega
gang í góðu samstarfi við skólastjóra Þjórsárskóla og Leikholts.
Gestur Einarsson, Elvar Már Svansson, Guðmundur Finnbogason og Kristín Gísladóttir fóru af fundi
kl. 16:25
11. Málefni Leikholts - Leikskólalóð
Anna Greta Ólafsdóttir, leikskólastjóri, fór yfir stöðu málsins og lagð fram upplýsingar um tilboð í
leiktæki á skólalóðina.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að afgreiða málið.
12. Málefni Leikholts - Skóladagatal
Leikskólastjóri lagði fram skóladagatal Leikholts fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd staðfestir skóladagatal Leikholts eins og það liggur fyrir og áréttar að það verði kynnt
fyrir foreldraráði.
13. Málefni Leikholts - Framvkæmd vegna hurða í Leikskóla
Fyrirhugað er að breyta hurðum í Leikholti þannig að sett verði gler í þær til að auka sýnileika og
gangsæi í starfi Leikskólans.
14. Málefni Leikholts - skýrsla leikskólastjóra
Leikskólastjóri lagði fram skýrslu sína frá síðasta skólanefndarfundi.
Starf leikskólans í apríl hefur verið fjölbreytt og viðburðaríkt. Skólaheimsóknir og sundkennsla
skólahóps ganga vel og foreldrasamstarf er öflugt, m.a. með Guggusundi á vegum foreldrafélagsins.
Árshátíð leikskólans tókst mjög vel með góðri þátttöku. Skólanefnd þakkar fyrir gott boð á
árshátíðina.
Breytingar hafa orðið í starfsmannahópnum með ráðningu nýrra starfsmanna og tímabundnu leyfi
deildarstjóra. Áfram er unnið að ráðningum með áherslu á stöðugleika. Gert er ráð fyrir
áframhaldandi svipuðum barnafjölda, en aðeins fjögur börn fara í grunnskóla í haust og ekki er gert
ráð fyrir að skólahópur snúi aftur í leikskólann.
Faglegt starf hefur verið í góðum farvegi með reglulegri sundkennslu og skipulögðum heimsóknum.
Foreldrasamfélagið er virkt og viðburðir vel sóttir. Unnið er að lokafrágangi innra mats og mótun á
skipulagi næsta skólaárs, auk þess sem skóladagatal liggur fyrir.Rekstur hefur verið krefjandi vegna
mikillar útleigu á sal, en því lýkur fljótlega.
Umræður urðu um málin.
15. Fundarslit
Fleira var ekki gert. Formaður sleit fundi kl. 17:10.
Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritu