Skólanefnd

25. fundur 12. mars 2026 kl. 15:00 - 18:15 Verknámshús Árnesi
Nefndarmenn
  • Vilborg Ástráðsdóttir formaður
  • Bjarni Hlynur Ásbjörnsson
  • Anna María Flygenring
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
  • Ingvar Hjálmarsson
  • Elvar Már Svansson
  • Anna Greta Ólafsdóttir
  • Guðmundur Finnbogason
  • Helga Guðlaugsdóttir
  • Ingibjörg María Guðmundsdóttir
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir
  • Gestur Einarsson
Fundargerð ritaði: Bjarni Hlynur Ásbjörnsson

1. Fundarsetning
Vilborg Ástráðsdóttir, formaður skólanefndar, setti fund kl. 15:00 og bauð fólk velkomið. Hún spurðist fyrir um það hvort einhverjar athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki.
Á fundinn voru mætt: Vilborg Ástráðsdóttir, Bjarni H. Ásbjörnsson, Ingvar Hjálmarsson, Anna María Flygenring, Sigríður Björk Marinósdóttir, Guðmundur Finnbogason, Elvar Már Svansson og Gestur Einarsson.
Sylvía Karen Heimisdóttir boðaði forföll.
Formaður óskaði eftir því að bæta við dagskrárlið; Drög að skóladagatali Leikholts.
Það var samþykkt.
Ingibjörg Maria Guðmundsdóttir kom á fundinn kl. 15:10

 

2. Málefni félagsmiðstöðvarinnar Ztart
Elvar Már Svansson, forstöðumaður Ztart lagði fram skýrslu um starf félagsmiðstöðvarinnar frá síðasta fundi.
Fjölbreytt dagskrá hefur verið í félagsmiðstöðinni að vanda. Kertagerð hefur slegið í gegn. Mæting miðstigs í félagsmiðstöðina hefur verið mjög góð en mæting unglingastigsins er dræmari. Starfið á unglingastigi er samt öflugt þótt stundum séu fáir á staðnum. Fyrirhuguð er bridge-kennsla á unglingastiginu.
Píluspjald er komið upp en það mætti bæta úr boltakosti.
Akstur í og úr félagsmiðstöðinni í Brautarholt er farinn af stað. Notkunin fer vaxandi.
Umræður urðu um málið

3. Málefni Þjórsárskóla - Skóladagatal
Guðmundur Finnbogason skólastjóri lagði fram skóladagatal Þjórsárskóla fyrir starfsárið 2026 -2027

Lotur skv. aðalnámskrá eru auðkenndar með lit í skóladagatalinu. Skólastjóri fór vel yfir dagatalið og skýrði helstu þætti þess. Skipulag þess er unnið í nokkru samstarfi við leikskólann og reynt var að samræma starfsdaga eftir því sem kostur gafst.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd staðfestir skóladagatal Þjórsárskóla eins og það liggur fyrir.

4. Málefni Þjórsárskóla - skýrsla skólastjóra
Skólastjóri lagði fram skýrslu sína um starfið í Þjórsárskóla frá síðasta skólanefndarfundi.
Samráðsfundur skólastjórnenda er haldinn reglulega. Smiðjudagar voru haldnir á Flúðum og á Laugarvatni. Gott framboð var af skemmtilegum smiðjum. Framvindupróf frá MMS hafa verið í
undirbúningi og verða lögð fyrir alla bekki í 4. - 9. bekk í næstu viku. Um er að ræða framvindupróf í lesskilningi og stærðfræði.
Chromebook-tölvur hafa verið teknar í notkun fyrir nemendur eftir nokkuð bras við uppsetningu í byrjun. Aðalnámskrá hefur verið skoðuð og rýnd nokkuð með tilliti til núverandi starfsemi og leiðbeinandi innleiðingar frá MMS. Verkefnið Heillaspor var kynnt fyrir starfsmönnum. Öskudagur var hefðbundinn. Skólastjóri tók sæti í stjórn STUÐ, Skólastjórafélags Suðurlands. Skólastjóri og formaður hittu framkvæmdanefnd skólamannvirkja og ræddu framtíðarstækkun á húsnæðis skólans. Unnið er að því að skipuleggja skólaakstur í lok skóladags með tilliti til mismunandi tíma í lok skóla eftir aldri og í tengslum við félagsmiðstöðina. Stjórnendur áttu fund með stjórnanda SVÁ varðandi verkefni og áskoranir í starfseminni.
Miðstig fór í skálaferð á Rjúpnavelli sem er hluti af útinámi skólans. Ferðin gekk mjög vel og vetur var ekkert til trafala. 
Starfsmenn fóru á námskeið um PALS, Pör að lesa saman, sem er aðferð við lestrarkennslu. FabLabkennsla fyrir starfsmenn er á döfinni á næstunni.
Umræður urðu um málið.

Anna Greta Ólafsdóttir, Helga Guðlaugsdóttir og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir komu á fundinn kl. 16:00

5. Sameiginleg málefni - kynning á nýju verknámshúsi
Skólastjóri fylgdi skólanefnd í gegnum nýja verknámshúsið í Þjórsárskóla. Hann kynnti textíl og myndmenntasvæðið, skólaeldhúsið og smíðastofuna.
Skólanefnd þakkar fyrir yfirferðina og lýsir ánægju sinni með vel heppnað verk.
Elvar Már fór af fundi kl. 16:27

6. Sameiginleg málefni - skýrsla formanns
Formaður lagði fram skýrslu sína varðandi störf sín frá síðasta fundi. Einn fundur hefur átt sér stað með skólastjóra Þjórsárskóla varðandi áskoranir í húsnæði með auknum
fjölda barna. Rætt var um hvernig megi nýta húsnæðið sem best þegar horft er á stækkunarmöguleika næstu ára. Rætt var hvernig eigi að horfa á húsnæðið til lengri tíma litið, t.d. hvernig anddyrið eigi að vera, hvar sé miðja hússins, hvernig flæði hússins nýtist best og margt fleira. Nefna má í þessu samhengi að núna eru tæplega 100 börn á aldrinum 0–9 ára í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Umræður urðu um málin.


7. Málefni Leikholts - gjaldskrá
Formaður lagði fram endurskoðaðar gjaldskrárreglur leikskólans Leikholts, þar sem orðalag er gert skýrara og einfaldara en fyrr og samræmt gildandi gjaldskrá.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd samþykkir framlagðar gjaldskrárreglur fyrir leikskólann Leikholt og vísar þeim til sveitarstjórnar til staðfestingar.
Ingibjörg María fór af fundi kl. 17:00.


8. Málefni Leikholts - samantekt á hugmyndavinnu um leikskólalóð
Leikskólastjóri lagði fram lokatillögur vinnuhóps varðandi leikskólalóðina og næstu skref í framkvæmdum þar. Vinna þarf meira í næsta hönnunarfasa á leikskólalóðinni.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd tekur undir nauðsyn þess að færa leikskólalóðina í það horf að hún henti leikskólabörnum sem best og að hún uppfylli allar þær öryggiskröfur sem gerðar eru til útisvæðis
við leikskóla. Skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að verkefnið verði unnið í sumar samkvæmt tillögum vinnuhópsins.
Ingvar fór af fundi kl. 17:26.


9. Málefni Leikholts - drög að skóladagatali Leikholts
Leikskólastjóri lagði fram drög að skóladagatali Leikholts fyrir skólaárið 2026 - 2027.
Umræður urðu um málið.


10. Málefni Leikholts - skýrsla leikskólastjóra
Leikskólastjóri lagði fram skýrslu sína um starfið í Leikholti frá síðasta skólanefndarfundi. Skólaheimsóknir elsta árgangs hafa gengið vel. Reglubundin sundkennsla hefur verið endurvakin í
samstarfi við Skeiðalaug. Heimsóknir viðbragðsaðila og menningarviðburðir á vegum leikskólans voru liðir í fræðslu og eflingu tengsla við nærsamfélagið. Áhersla var lögð á faglega endurmenntun starfsfólks með fyrirlestrum um listsköpun og útikennslu í leikskólastarfi á nýafstöðnum starfsdegi. Samhliða var ráðist í kerfisbundna endurskoðun og flokkun á kennslugögnum og efniviði skólans í þeim tilgangi að hámarka nýtingu þeirra og bæta yfirsýn. Sveitarstjóri og leikskólastjóri hafa unnið tillögur að breyttum opnunartíma Leikholts í samráði við foreldra og starfsfólk. Frumtillögur hafa verið kynntar hagsmunaaðilum og sendar foreldrum til umsagnar. Unnið verður úr athugasemdum og endurskoðaðar tillögur lagðar fram til afgreiðslu að því ferli loknu.
Lóðarhópur leikskólans hefur lokið störfum og munu niðurstöður hópsins verða kynntar skólanefnd og sveitarstjórn. Jafnframt er unnið að mönnun og skipulagningu starfsemi skólans fyrir tímabilið eftir páska til að tryggja óslitna þjónustu í ljósi breytinga á starfsmannahópi.
Umræður urðu um málin.


Fleira var ekki gert. Formaður sleit fundi kl. 18:15
Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritun