Skólanefnd

20. fundur 22. maí 2025 kl. 15:30 - 17:45 Árnesi
Nefndarmenn
  • Vilborg Ástráðsdóttir
  • Bjarni H. Ásbjörnsson
  • Gunnhildur Valgeirsdóttir í fjarveru Ingvars Hjálmarssonar
  • Sigríður Björk Marinósdóttir
  • Anna María Flygenring
  • Bolette H. Koch Skólastjóri
  • Anna Greta Ólafsdóttir Leikskólastjóri
  • Ingibjörg María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi Þjórsárskóla
  • Helga Guðlaugsdóttir áheyrnarfulltrúi Leikholts
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir formaður Foreldrafélags Leikholts
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Bjarni Hlynur Ásbjörnsson


20. skólanefndarfundur
Árnesi, 22.5.2025

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Fundarsetning

Vilborg Ástráðsdóttir, formaður skólanefndar setti fund kl. 15:31 og bauð fólk velkomið. Hún spurðist fyrir um það hvort einhverjar athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki

2. Málefni Þjórsárskóla - skýrsla skólastjóra

Skólastjóri lagði fram skýrslu sína um starfið í skólanum frá síðasta skólanefndarfundi. Áttundi bekkur fór með Flúðaskóla á skólahreysti og tók þátt í smiðjum í Flóaskóla, þar sem leiðbeinendur komu frá Listaháskóla Íslands og aðstoðuðu nemendur í að búa til hin ýmsu listaverk á ólíku formi. Opnuð var sýning á verkunum í lok smiðjunnar.

Þjórsárskóli skipulagði smiðjur fyrir uppsveitir og Flóa ásamt því að taka á móti miðstiginu. Nokkur áskorun var að taka á móti 140 börnum úr uppsveitunum þar sem veðrið setti strik í skipulag og ekki var hægt að vera með smiðjuvinnu úti. En með samstilltu átaki allra var hægt að skipuleggta allt skólastarf þannig að smiðjurnar gengu upp. Árleg sundkeppni var haldin í Brautarholti og 5. – 7. bekkur fór í vísindaferð til Reykjavíkur. Litla upplestrarkeppnin í 4. bekk var haldin í gær og verðandi 1. bekkingar komu í skólann með skólabíl og voru heilan dag í skólanum. Þeir sem vildu fóru í skólavistun eftir lok skóladagsins.

Vorferð 5. – 7. bekkjar var farin til Vestmannaeyja og tveir kennarar tóku þátt í skólastjóraráðstefnu þar.

Áttundi bekkur fór í kynnisferð í Korngrís og Reykás og kynntu sér starfsemina þar. Vel var tekið á móti börnunum.

Verið er að vinna úr umsóknum um störf í skólanum.

Umræður urðu um málið.

 

3. Málefni Þjórsárskóla - Ráðning skólastjóra

Bolette ákvað í byrjun árs að ljúka störfum sínum sem skólastjóri Þjórsárskóla að loknu þessu skólaári. Í hennar stað var ráðinn Guðmundur Finnbogason sem kemur til starfa í lok sumars.

Eftir ferli við mat umsókna og viðtala staðfesti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps á fundi þann 21. apríl, hæfi umsækjandans Guðmundar Finnbogasonar í starf skólastjóra Þjórsárskóla.

Hinn 21. mars síðasliðinn var auglýst staða skólastjóra í Þjórsárskóla. Alls sóttu sex einstaklingar um starfið en þrír drógu umsóknir sínar til baka eftir að umsóknarfrestur rann út hinn 14. apríl. Auglýst var eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga með áhuga á uppbyggingu skólastarfs til framtíðar sem jafnframt er með réttindi til kennslu og reynslu af stjórnun.

Guðmundur Finnbogason mun taka við starfinu af Bolette H. Koch sem hefur verið í starfi skólastjóra Þjórsárskóla frá árinu 2011 og hyggst láta af störfum að liðnu skólaári 2024-2025.

Guðmundur er með B. Ed próf í grunnskólakennarafræðum, viðbótardiplóma í menntastjórnun og matsfræði og er að ljúka MBA námi frá UHI í Skotlandi.Guðmundur starfaði áður sem aðstoðarskólastjóri í Bláskógaskóla á Laugarvatni árin 2017-2022 og var framkvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni á árunum 2014-2017. Síðustu þrjú ár hefur Guðmundur starfað sem verkefnastjóri hjá Landsvirkjun.

Guðmundur er giftur Guðrúnu Ásu Kristleifsdóttur og eiga þau þrjú börn og búa á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Guðmundur mun formlega hefja störf í byrjun ágúst nk.

Umræður urðu um málið.

Skólanefnd vill færa Bolette Höeg Koch kærar þakkir fyrir farsælt starf í Þjórsárskóla frá árinu 2011. Bolette hefur borið hag skólasamfélagsins fyrir brjósti, verið traustur samstarfsfélagi og unnið af samvisku fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Bolette er óskað velfarnaðar í leik og starfi komandi missera og ára. Guðmundur Finnbogason er boðinn velkominn til starfa.

 

4. Málefni Þjórsárskóla - Kynning á húsnæðismálum Þjórsárskóla

Lögð var fram grunnteikning af breytingum á skólahúsnæði Þjórsárskóla þar sem kennslustofur miðstigs verða. Næsta skólaár verða nemendur í áttunda og níunda bekk í Þjórsárskóla, en nemendur tíunda bekks ljúka sínu námi í Flúðaskóla.

Formaður kynnti ákvörðun um byggingu á verknámshúsi á byggingarlóð skólans. Í því húsi verður kennsla list- og verkgreina; heimilisfræði, smíðakennslu, myndlistakennslu og textílkennsla. Að auki verður þar geymsla fyrir skíði skólans og áhöld til útikennslu í heimilisfræði. Lagðar voru fram grunn- og afstöðuteikningar af verknámshúsinu.

Umræður urðu um málin.

 

5. Sameiginleg málefni - Frístundaheimili sumarið 2025

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir kom á fundinn kl. 16:16. Anna Greta Ólafsdóttir mætti kl. 16:18 og Helga Guðlaugsdóttir kom kl. 16:21

 

6. Sveitarstjóri kynnti drög að fyrirkomulagi frístundaheimilis í lok sumars.

Starfsmaður vinnuskólans ætlar að taka að sér frístundaheimili í byrjun ágúst, fyrir börn sem fara í fyrsta og annan bekk. Fyrirkomulagið er ekki að fullu mótað en verður í leikjanámskeiðsstíl, t.d. hreysti, spil, vísindi, náttúruskoðun, ævintýraferðir og útivera. Stefnt er að því að starf frístundaheimilisins verði frá kl 9 til 16 mánudaga til fimmtudags ef þörf er á, og frá kl 9 til 12 á föstudögum. Ef vilji verður hjá þeim börnum sem verða í vinnuskólanum, þá er mögulega hægt að bjóða þeim að vera áfram og hjálpa til við þetta starf. Staðsetning hefur ekki verið að fullu ákveðin.

Umræður urðu um málið.

 

6. Sameiginleg málefni - Kynning á verkefni úr Þróunarsjóði

Lögð var fram greinargerð vegna verkefnisins „Sjá, snerta, skynja og skapa“ sem fékk styrk úr Þróunarsjóði skólasamfélags Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Helga Guðlaugsdóttir lýsti verkefninu og niðurstöðu þess. Að verkefninu stóðu Oddný Stefanía Steinþórsdóttir og Helga Guðlaugsdóttir í leikskólanum Leikholti. Þær störfuðu sem deildarstjórateymi á miðdeild leikskólans á meðan á verkefninu stóð og miðaðist því verkefnið við börn á aldrinum 2ja til 3ja ára.

Markmið verkefnisins var að efla leikskólann í að vinna með vitsmuna- tilfinninga- og félagslegan þroska barnanna. Í niðurstöðu þess segir að verkefnið efli faglegt starf leikskólans með það að marki að börnin njóti ávinningsins. Það stuðlar að skapandi hugsun, félagslegri samvinnu og sköpunar hjá börnunum.

Afurð verkefnisins er handbók sem er skemmtileg og hugmyndarík og mun gagnast starfsfólki og börnum í Leikholti. Handbókin er í möppu og eru verkefnin hvert með sína blaðsíðu sem hægt er að taka úr við notkun. Á annarri hlið síðunnar eru myndir af uppsetningu verkefnanna og hinum megin lýsing og markmið með verkefninu.

Umræður urðu um málið.

Skólanefnd þakkar fyrir skemmtilegt og vel unnið verkefni.

 

7. Sameiginleg málefni - skýrsla formanns skólanefndar

Framundan er stefnumótun faglegs starfs í félagsmiðstöð og á frístundaheimili. Mikilvægt er að meginstef þess sé efla félagsleg tengsl, samveru, leiki, tónlist, leiklist og skapandi starf.

Sveitarstjóri sagði að núna höfum við verið með starf félagsmiðstöðvar í húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Ztart frá því um mánaðarmótin janúar, febrúar. Aðstaðan hjá okkur er til fyrirmyndar.

Auglýsa þarf stöðu starfsmanna fyrir næsta vetur og er auglýsingin í mótun. Rætt var um hvort það gæti verið að myndast grundvöllur fyrir því að auka samstarf enn meira.

Rætt var að ungmennaþing væri ennþá í mótun og verður vonandi haldið á næstunni. Jafnframt var rætt um hvað væri hægt að taka til bragðs til þess að draga ungt fólk aftur heim eftir eftir nám.

Búið er að gera könnun annars vegar á meðal barna Þjórsárskóla og hins vegar á meðal foreldra þeirra varðandi skólamáltíðir. Næst er að funda með skólastjóra, Þórði Yngvasyni sem sér um rekstur mötuneytisins og Gunnari Gunnarssyni verkefnastjóra heilsueflandi samfélags sem lagði könnunina fram, og fara yfir helstu punktana og hvernig hægt sé að þróa fyrirkomulag skóalmáltíða í samræmi við niðurstöður. Heilt yfir kom könnunin vel út, börnin eru yfirleitt ánægð með matinn, foreldrar vilja fá fisk oftar og mat á föstudögum. Börnin kalla eftir meiri fjölbreytni í morgunhressingu og vilja fá morgunmatinn aftur eins og hann var.

Lagt er upp með að birta niðurstöður könnunarinnar á fyrsta fundi í haust. Rætt var um það hvort það gæti myndast rúm til að koma morgunmatnum aftur á dagskrá í skólanum.

Rætt var um að sambærileg könnun yrði lögð fyrir leikskólann.

Umræður urðu um málin.

 

Bolette og Ingibjörg María fóru af fundi kl. 17:00

 

8. Málefni Leikholts - erindi vegna leikskólalóðar

Erindi var frestað.

 

9. Málefni Leikholts - verkáætlun fyrir leikskólalóð

Formaður lagði fram fundargerð frá 24. janúar 2025 vegna endurnýjunar útisvæðis við leikskóla. Á fundinn mættu leikskólastjóri, formaður skólanefndar, sveitarstjóri og oddviti.

Þar er dregin upp verkáætlun og verkefninu skipt upp í verkþætti. Samkvæmt verkáætluninni verður hönnun lóðarinnar kláruð í sumarbyrjun 2025, undirbúningi framkvæmda lýkur í febrúar 2026. Framkvæmdir við lóðina hefjast í maí 2026 og klárast í ágúst 2027.

Formaður ræddi um útfærslur á breytingum og að hugmyndir eru að þróast um staðsetningu leiktækja og fleira.

Umræður urðu um málið.

 

10. Málefni Leikholts - skýrsla leikskólastjóra

Leikskólastjóri lagði fram skýrslu sína yfir starfið í Leikholti í apríl og maí 2025.

Glæsileg árshátið Leikholts var haldin 10. apríl fyrir fullum sal gesta. Skráningardagar um páska nýttust foreldrum en dreifðust þannig að lítið var um orlofstöku starfsfólks. Í staðnn voru skráningardagarnir nýttir til innanhússverkefna, til að mynda í SÍ-verkefninu (snemmtæk íhlutun).

Starfsþróunarsamtöl milli leikstjórastjóra og starfsmanna hafa farið fram og er þeim að ljúka um þessar mundir. Starfsþróunarsamtöl nýtast vel til þess að meta starfið á skólaárinu og til þess að skipuleggja það næsta. Endurmenntun og starfsþróun starfsmanna eru jafnframt skipulögð í kjölfar samtalanna.

Talmeinafræðingur hefur komið í leikskólann í nokkur skipti sem hluti af nýju skipulagi hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Starfsmenn fagna breyttu fyrirkomulagi en hefðu gjarnan viljað frá meiri upplýsingar um fyrirkomulagið og haft meiri aðkomu að mótun þess.

Framundan er vinna við innra mat leikskólans, fara yfir skólaárið og skipuleggja það næsta.

Börnin hafa verið iðin við að sinna ræktun í Bambahúsinu og víðar. Þau hafa verið mikið úti í náttúrunni, enda hefur veðrið kallað þau til sín.

Lambaferðir eru nýyfirstaðnar. Yngri börnin kíktu á lömb að Húsatóftum og er Elínu Moquist þakkað fyrir mótttökurnar. Eldri börnin gengu að Vorsabæ og litu í fjárhúsin hjá Stefaníu og Birni. Þar var auk þess grillað og sveitasælunnar notið. Þeim hjónum í Vorsabæ er ennig þakkað kærlega fyrir mótttökurnar.

Væntanleg eru 5 ný börn á leikskólann í upphafi næsta skólaárs. Unnið er að móttökuáætlun fyrir börn sem hafa ekki íslensku sem móðurmál. Sú vinna fer fram í tengslum við SÍ verkefnið.

Umræður urðu um málið.

 

11. Fundarslit

Fleira var ekki gert. Formaður sleit fundi kl. 17:45.

Næsti fundur verður haldinn 25. september.

 

Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritun.