- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Árnesi, 10.4.2025
Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:
1. Fundarsetning
Vilborg Ástráðsdóttir, formaður skólanefndar setti fund kl. 15:35 og bauð fólk velkomið. Hún spurðist fyrir um það hvort einhverjar athugasemdir væru við fundarboðið. Svo var ekki.
Á fundinn voru mætt Vilborg Ástráðsdóttir, Bjarni H. Ásbjörnsson, Gunnhildur Valgeirsdóttir í forföllum Ingvars Hjálmarssonar, Sigríður Björk Marinósdóttir, Anna María Flygenring, Kristín Gísladóttir í forföllum Bolette Höeg Koch og Ingibjörg María Guðmundsdóttir. Elvar Már Svansson boðaði forföll.
2. Málefni Þjórsárskóla - Samantekt könnunar á lengri skóladegi
Á fundi skólanefndar þann 30. janúar s.l. var lagt fram erindi frá stjórnendateymi Þjórsárskóla varðandi lengingu á viðveru yngsta stigs í skólanum. Skólanefnd taldi nauðsynlegt að að kynna málið fyrir foreldrum og fá álit þeirra. Tilgangurinn er að einfalda og samræma stundatöflugerð, auka samvistir nemenda eftir skóla, samræma og hagræða í skólaakstri.Þjórsárskóli sendi út könnun í lok mars, til foreldra barna í 1.- 4. bekk um breytingu á skóladegi og heimkeyrslu yngsta stigsins, ásamt skoðunarkönnunar til foreldra barna í elsta árgangi leikskólans um viðhorf þeirra til lengingar skóladags með tómstundastarfi í Þjórsárskóla.
Niðurstöðurnar eru jákvæðar gagnvart þeim breytingum á frístund sem eru til skoðunar.
Fram kom að viðbót yngsta stigsins yrði í formi tómstundastarfs en ekki sem kennsla.
Í kjölfar könnunarinnar var tekið saman yfirlit yfir æfingatíma fyrir þennan aldurshóp í Árnesi, á Flúðum og á Selfossi. Í Árnesi eru æfingar skipulagðar í skólalok. Nemendur geta náð öllum æfingum í fimleikum á Flúðum og öllum æfingum í frjálsum á Selfossi. Æfingum í öðrum íþróttum er ekki hægt að ná, eða einungis að hluta til miðað við stundatöflur og æfingatöflur sem eru í gildi í dag.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd bendir á að fyrirkomulagið þurfi að vera með skýrum hætti og hvetur stjórnendur til að skipuleggja málið áfram í samstarfi við sveitarstjóra.
3. Málefni Þjórsárskóla - skýrsla skólastjóra
Lögð var fram skýrsla skólastjóra um starfið frá síðasta fundi.
Opið hús var í Þjórsárskóla þann 13. mars. Margt fólk kom í skólann þar sem breytingar á húsnæðinu voru kynntar. Árshátíð skólans er hápunktur skólans ár hvert. Frábær sýning hjá nemendum og vel heppnað kvöld. Nemendur fóru einnig á generalprufu árshátíðar unglingastigsins á Flúðm. Fulltrúi Þjórsárskóla í stóru upplesetrarkeppninni var valinn þann 8. apríl. Þjórsárskóli verður þátttakandi í verkefninu Evolytes, sem er kennsla í grunnatriðum í stærðfræði og byggir á tölvuleik. Kennarar og stjórnendur skólans hafa verið duglegir að sækja fundi, námskeið og ráðstefnur í mars.Vinna er hafin við að innleiða ný hæfniviðmið úr nýrri aðalnámskrá í ólíkum námsgreinum.
Umræður urðu um málið.
4. Sameiginleg málefni - auglýsing
Anna Greta Ólafsdóttir mætti kl. 16:05. Helga Guðslaugsdóttir kl. 16:07 og Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir kom kl. 16:08.
Formaður lagði fram til kynningar auglýsingu, dagsetta 30. mars 2025, um ráðningu skólastjóra Þjórsárskóla. Umsóknarfrestur rennur út 14. apríl næstkomandi.
Umræður urðu um málið.
5. Sameiginleg málefni - Starfsáælun skólanefndar næsta skólaár
Formaður lagði fram drög að starfsáætlun skólanefndar næsta skólaár. Gert er ráð fyrir að skólanefndarfundir verði haldnir síðasta fimmtudag í mánuði. Þannig verða skólanefndarfundir á árinu 2025 haldnir þann 25. september, 30. október og 27. nóvember. Á árinu 2026 verða þeir haldnir 29. janúar, 5. mars, 29. apríl og 28. maí.
Í drögum að starfsáætluninni koma fram tillögur að þeim málefnum sem áætlað er að taka fyrir á hverjum fundi fyrir sig.
Umræður urðu um málið.
6. Sameiginleg málefni - frístundaheimili
Í samræmi við nýtt erindisbréf skólanefndar verður það á forræði skólanefndar að koma á laggirnar stefnumótun um frístundaheimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Orðið frístundaheimili er tekið úr lögum um grunnskóla en þar er verið að vísa til þess sem áður hefur verið kallað frístund skólavistun og eða lengd viðvera. Frístundaheimili er þess eðlis að það starfar eftir að skóladegi lýkur sem og utan starfstíma skóla upp að ákveðnu marki.
Hér er til umfjöllunar hugmynd um að Skeiða- og Gnúpverjahreppur bjóði verðandi 1. – 4. bekkingum upp á vistun á frístundaheimili í ágúst, eftir að sumarleyfum leikskóla lýkur og þar til skóli hefst.. Helstu áskoranir í þessu samhengi gætu verið mannauður og aðstaða.
Rætt var um fyrirkomulag morgunmats og hvaða leiðir væri hægt að fara til að börnin verði ekki svöng áður en komið er að hádegismat.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd leggur til að farið verði í vinnu við skipulagningu á þessu fyrirkomulagi í ágúst fyrir verðandi 1. – 4. bekk og óskar eftir því við sveitarstjórn að sveitarstjóra, formanni skólanefndar og skólastjórum verði falið að vinna að málinu og koma því í farveg á næstu vikum.
7. Sameiginleg málefni - Þróunarsjóður
Lögð var fram greinargerð Sigríðar Bjarkar Gylfadóttur um framvindu verkefnisins, Á skíðum skemmti ég mér. Í vetur fengu kennarar leikskólans námskeið í því hvernig megi innleiða notkun gönguskíða með börnum. Nemendur og kennarar nýttu þá fáu daga sem gáfust í vetur til skíðaiðkunnar. Ljóst er að verkefnið er áhugavert og kennarar staðráðnir í að láta verkefnið vaxa og dafna næstu vetur.
Umræður urðu um málið.
8. Sameiginleg málefni - skýrsla formanns skólanefndar
Erindisbréf skólanefndar hefur breyst að nokkru leyti frá síðustu kynningu. Stærsta breytingin eftir sem áður er að frístundaheimilis- og félagsmiðstöðvarstarf fellur nú undir málefni skólanefndar og koma fulltrúar frá þeim stofnunum til með að kjósa áheyrnarfulltrúa til að sitja næsta fund, að því gefnu að sveitarstjórn samþykki erindisbréfið. Aðrar breytingar eru að mestu í 2. kafla, 4. grein, um Hlutverk og ákvarðanir, en þar er til einföldunar vísað beint í lög og reglugerðir sem skólanefnd á að starfa eftir í stað þess að vera með upptalningu eða endursögn á efni sem er í lögum og reglugerðum. Fleiri breytingar voru gerðar en eru ekki tíundaðar hér.
Undanfarið hefur farið fram undirbúningsvinna að nýju verknámshúsi sem ætlað er að reisa við endan á bílastæðinu, við hliðina á íþróttavellinum. Um er að ræða límtréshús sem kemur til með að vera í sama útliti og íþróttahúsið, en eins og gefur að skilja töluvert minna umfangs. Í þessu verknámshúsi verður smíðastofa, textílstofa, myndlist og heimilisfræði. Innra skipulag hefur verið og verður áfram unnið í takt við óskir kennara í Þjórsárskóla sem og lög, reglugerðir, aðalnámsskrá, skólanámskrá og síðast en ekki síst skólastefnu sveitarfélagsins.
Í Þjórsárskóla verða í sumar breytingar innanhús í þeim tilgangi að koma til móts við aukinn nemendafjölda á miðstigi. Í breytingunum verður núverandi smíðastofu breytt í almenna kennslustofu, bætt verður við milliveggjum til að mynda ganga milli kennslustofa og komið verður fyrir rýmra salerni á jarðhæð. Gera má ráð fyrir einhverjum breytingum á hverju ári næstu árin til að mæta þörfum stækkandi nemendahóp. Nauðsynlegt verður að ráðast í stefnumörkun og áfangaskiptingu á stækkun skólahúsnæðisins til framtíðar.
Hægt hefur gengið að koma ungmennaþingi á laggirnar en vonir standa til að hægt verði að halda þingið snemma í haust.
Mikil ánægja er með starf félagsmiðstöðvarinnar Ztart og á forstöðumaður og starfsfólk mikið hrós skilið fyrir áhugasama og góða byrjun.
Umræður urðu um málið.
9. Mál til kynningar - Erindisbréf skólanefndar
Formaður lagði fram erindisbréf skólanefndar til kynningar. Á skólanefnarfundi þann 6. mars s.l. var lagt til að haldinn yrði vinnufundur til að fara yfir ábendingar sem komu fram á fundinum. Sú vinna hefur átt sér stað og er erindisbréfið því komið í lokabúning.
Umræður urðu um málið.
Skólanefnd vísar erindisbréfinu til sveitarstjórnar til samþykktar
10. Mál til kynningar - Frístundastyrkur
Lagðar eru fram til kynningar breyttar reglur um tómstundastyrk í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Breytingarnar felast í því að núna geta foreldrar sótt um tómstundastyrk fyrir börn frá 0 ára aldri.
Umræður urðu um málið
11. Málefni Leikholts - starfsáætlun (uppfærð)
Af fundi fóru Ingibjörg María Guðmundsdóttir og Kristín Gísladóttir kl. 17:09.
Formaður lagði fram bréf til skólanefndar, dagsett 7. apríl 2025, frá leikskólastjóra varðandi uppfærslu á starfsáætlun Leikholts fyrir skólaárið 2024-2025. Gera þurfti breytingar til að tryggja að allar upplýsingar í starfsáætluninni séu réttar og í samræmi við gildandi gjaldskrá Leikholts.
Jafnframt var lögð fram ný og breytt starfsáætlun 2024-2025 til staðfestingar.
Umræður urðu um málin.
Skólanefnd staðfestir framlagða starfsáætlun Leikholts fyrir skólaárið 2024-2025.
12. Málefni Leikholts - Erindi frá foreldrafélagi
Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir, f.h. foreldrafélagsins Leiksteins lagð fram eftirfarandi bókun.
„Við í foreldrafélaginu viljum koma á framfæri ábendingum varðandi gjaldskrá leikskólans. Í nágrannasveitarfélögum okkar er boðið uppá einhverskonar afsláttarfyrirkomulag til að koma á móts við öryrkja annarsvegar og námsmenn hinsvegar, og einnig til einstæðra foreldra, (en það hefur þegar verið tekið fyrir á skólanefndarfundi). Við teljum að eðlilegt sé að boðið verði upp á sambærileg kjör í okkar sveitarfélagi til að koma á móts við foreldra í ólíkri stöðu. Varðandi gjaldfrjálsa leikskólavist í t.d 6 klst teljum við að útfæra verði þá tilhögun með þeim hætti að það komi ekki niður á þeim fjölskyldum sem hafa börn sín í 8klst vistun, það er að gjöldin fyrir þessar tvær klukkustundir séu ekki hærri en nú er fyrir 8 klst vistun.Þá viljum við einnig taka til skoðunar hvort að tímasetningar á gjaldfrjálsri leikskólavistun stæðu aðeins til boða frà 8-14 eða hvort hægt væri, með tilliti til leikskólastarfsins, að hafa meiri sveigjanleika á vistunartíma. Við teljum að jákvætt væri að taka þetta fyrirkomulag upp í þeim skilningi að það kæmi sér vel fyrir foreldra í lægra starfshlutfalli og/eða fæðingarorlofi, en komi ekki niður á foreldrum sem hafa börn sín í 8 tíma vistun. Við í foreldrafélaginu viljum taka til umræðu tilhögun frístundastyrks fyrir börn og ungmenni í sveitafélaginu.Núverandi fyrirkomulag er að veita börnum frá 6-18 ára aldri tómstundastyrk, en enginn styrkur er veittur fyrir börn undir 6 ára aldri. Við teljum að þarna sé ekki verið að gæta jafnréttis og viljum við kalla eftir breytingu á þessu fyrirkomulagi. Og bendum á að í nágrannasveitafélögum okkar er veittur styrkur til frístundastarfs frá 0 ára aldri, þar má nefna Hrunamannahrepp, Ölfus og Grímsnes-og Grafningshrepp. Börnum á aldrinum 0-5 ára stendur til boða tómstundastarf af ýmsum toga og teljum við ekki eðlilegt að aldursviðmið núgildandi fyrirkomulag eigi að vera fyrirstaða til tómstundaiðkunar ungra barna.“
Skólanefnd tekur undir sjónarmið um afslátt til foreldra sem eru tekjulægri og sú nálgun hefur verið rædd í skólanefnd og sveitarstjórn en ekki hefur verið tekin ákvörðun um málið.
Skólanefnd þakkar fyrir ábendingar um gjaldfrjálsa leikskólavist og telur að slík innlegg séu mikilvæg fyrir þá umræðu hvort taka eigi upp gjaldfrjálsa leikskólavist.
Sveitarstjóri hefur lagt til breytingar á frístundastyrk með þeim hætti að nú er frístundastyrkurinn frá 0 ára aldri og eru nýjar reglur um tómstundastyrk til kynningar hér á fundinum.
Umræður urðu um málin.
Skólanefnd vísar þessari ábendingu foreldrafélagsins Leiksteins til sveitarstjórnar.
13. Málefni Leikholts - Ósk um námsleyfi
Formaður lagði fram bréf, dagsett 7. apríl 2025 varðandi ósk um launað námsleyfi.
Umræður urðu um málið.
Það er fagnaðarefni að starfsfólk sæki sér nám og starfsréttindi og tekur skólanefnd vel í umsókn um launað námsleyfi og beinir því til sveitarstjórnar að samþykkja umsóknina á grundvelli þess að umsækjandi hefur uppfyllt skilyrði.
14. Málefni Leikholts - skýrsla skólastjóra
Leikskólastjóri lagði fram skýrslu sína um starfið í Leikholti frá síðasta skólanefndarfundi. Hún liggur fyrir á vefsíðu leikskólans.
Eitt nýtt barn hóf leikskólagöngu á tímabilinu. Tveir starfsmenn eru komnir aftur til starfa eftir leyfi og hefur leikskólastarfið komist í betra jafnvægi. Elstu börn leikskólans fóru og sáu árshátíðarsýningu Þjórsárskóla. Þau fara brátt í skólaheimsókn þar sem þau munu taka þátt í skólastarfinu og kynnast umhverfi Þjórsárskóla betur fyrir komandi skólaár.S.Í. verkefnið þróast áfram og handbók þess mun brátt verða fullbúin. Framundan eru starfþróunarsamtöl leikskólastjóra við starfsfólk sitt. Árshátíðarundirbúningur hefur gengið vel og er árshátíðin einn stærsti viðburður leikskólans ár hvert.
Formaður þakkaði fyrir að skólanefnd hafi verið boðið á árshátíðina sem var einkar vel heppnuð, skemmtileg og áhugaverð. Við þökkum kærlega fyrir.
Umræður urðu um málið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:03.
Þeir fulltrúar sem voru á fundinum staðfesta fundargerðina með rafrænni undirritun.