Loftslags-og umhverfisnefnd

1. fundur 30. september 2026 kl. 09:00 - 11:45 Árnes
Nefndarmenn
  • Harpa Dís Harðardóttir
  • Birna Þorsteinsdóttir
  • Bjarki Þór Þorsteinsson í fjarveru Jóhannesar Hlyns Sigurðssonar
  • Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir
  • Ingvar Hersir Sveinsson
Starfsmenn
  • Sylvía Karen Heimisdóttir
Fundargerð ritaði: Sylvía Karen Heimisdóttir

Spurðist formaður fyrir um hvort athugasemdir væru við fundarboðið, svo reyndist ekki vera.

 

Mál til afgreiðslu og umfjöllunar:

1. Erindisbréf loftslags- og umhverfisnefndar

Erindisbréf nefndarinnar lagt fram til samþykktar.

Erindisbréf samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

 

Kosning varaformanns:

Lagt er til að Birna Þorsteinsdóttir verði varaformaður

Samþykkt með fimm atkvæðum að Birna Þorsteinsdóttir verði varaformaður Loftslags- og umhverfisnefndar.

 

Kosning ritara:

Lagt er til að Sylvía Karen Heimisdóttir verði ritari nefndarinnar

Samþykkt með fimm atkvæðum að Sylvía Karen Heimisdóttir verði ritari Loftslags- og umhverfisnefndar.

 

2. Verkefnin framundan

​​​​​Farið var yfir helstu verkefni sem heyra undir nefndina. Unnið að því að gera aðgerðaráætlun fyrir komandi ár í tengslum við hreinsunarátak, hreinlætismál og kynningarefni í samstarfi við starfsfólk þjónustumiðstöðvar. Nefnd falið að viða að sér hugmyndum og kynna á næsta fundi.

Rætt var um að veita umhverfisverðlaun á sveitahátíðinni Upp í sveit sumarið 2027.

3. Umsögn um framkvæmdaleyfi fyrir veitingu Austurkvíslar Þjórsárkvísla í fyrri farveg

Með erindi Náttúruverndarstofnunar, dagsettu 25. mars 2026, var þess farið á leit við Loftslags- og umhverfisnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps að hún veitti umsögn vegna umsóknar Landsvirkjunar frá 20. mars 2026 um undanþágu frá friðlýsingarskilmálum Þjórsárvera vegna umsóknar um leyfi til að færa Austurkvísl Þjórsárkvísla í fyrri farveg. Með erindinu fylgdu umsóknir ásamt ýmsum fylgiskjölum, þ.m.t. drögum að vöktunaráætlun.

Lögð fram drög að umsögn loftslags- og umhverfisnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna umsóknar um undanþágu frá friðlýsingarskilmálum Þjórsárvera. Samkvæmt 41. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd (náttúruverndarlög) getur Náttúruverndarstofnun, að fenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar og viðkomandi náttúruverndarnefndar, veitt undanþágu frá ákvæðum friðlýsingar, (a) ef það stríðir ekki verulega gegn markmiði friðlýsingarinnar og hefur óveruleg áhrif á verndargildi þeirra náttúruminja sem friðlýsingin beinist að, eða (b) ef öryggissjónarmið eða mjög brýnir samfélagslegir hagsmunir krefjast þess. Heimilt er að binda heimild til undanþágu skilyrðum sem þykja nauðsynleg til að draga úr neikvæðum áhrifum framkvæmdarinnar á verndargildi minjanna, sbr. 2. mgr. 41. gr. náttúruverndarlaga.

Loftslags- og umhverfisnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkir með þremur atkvæðum framlagða umsögn og að leggjast ekki gegn framkvæmdinni.

 

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir og Ingvar Hersis Sveinsson gera athugasemd við fyrirkomulag leyfisveitingarferilsins. Málið hefði þurft að koma til umræðu í Loftslags- og umhverfsnefnd sveitarfélagsins áður en formleg leyfisveiting sveitarstjórnar um framkvæmdina var samþykkt.

Ingvar Hersir Sveinsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

 

Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir greiðir atkvæði gegn framlagðri umsögn og leggur fram eftirfarandi bókun:

 

Ég get ekki tekið undir fyrirliggjandi umsögn. 

Ég geri mér grein fyrir að fyrirhuguð framkvæmd er takmörkuð að umfangi og að fyrir henni eru færð veigamikil rök um orkunýtingu, orkuöryggi og nýtingu núverandi virkjunarkerfis. Afstaða mín byggist því ekki fyrst og fremst á umfangi framkvæmdarinnar sjálfrar heldur á því að hún felur í sér beina stýringu náttúrulegs vatnsfalls innan friðlýsts svæðis þar sem vernd vatnafars, vistkerfa, víðernis, landslagsheildar og náttúrulegra ferla er hluti af verndarmarkmiðum. 

Náttúruverndarstofnun hefur í fyrri meðferð málsins lagt áherslu á mikilvægi þess að náttúra Þjórsárvera fái að þróast á eigin forsendum og bent á að stýring vatnsrennslis og mótun farvegar geti haft áhrif á vatnafar, gróður, vistgerðir og þá vistfræðilegu heild sem vernd svæðisins byggist á. Stofnunin kallaði jafnframt eftir heildstæðara vistfræðilegu mati á áhrifum breytinga á vatnsrennsli. 

Frá fyrri meðferð málsins hafa bæst við mikilvæg gögn, einkum uppfært mat á áhrifum á vatnshlot og sérstakt mat á áhrifum á grunnvatn. Ég tel þó ekki liggja nægilega skýrt fyrir að fram hafi farið heildstætt vistfræðilegt mat sem tekur saman áhrif framkvæmdarinnar á helstu verndargildi svæðisins og náttúrulega þróun þess. Þá tel ég ekki nægilega sýnt fram á að framkvæmdina megi líta á sem verndaraðgerð í heild sinni, enda hefur framkvæmdaraðili sjálfur lýst mögulegum jákvæðum áhrifum á gróður og búsvæði sem afleiddum áhrifum framkvæmdarinnar en jafnframt ítrekað að framkvæmdinni sé ekki ætlað að vera verndaraðgerð. 

Ég tel jafnframt varhugavert að gera lítið úr ákvæði friðlýsingarinnar um að svæðið og náttúrufar þess fái að þróast eftir náttúrulegum lögmálum og á eigin forsendum. Tillaga um að fella slíkt ákvæði brott er að mínu mati sjálfstætt álitaefni um breytingu á friðlýsingarskilmálum og ætti að fá sérstaka stjórnsýslulega og faglega meðferð, óháð þessari einstöku undanþágubeiðni. 

Þá liggur fyrir að framkvæmdin er ekki talin varanleg og að mögulega kunni að þurfa að endurtaka sambærileg inngrip síðar. Að mínu mati eykur það mikilvægi þess að ákvörðun um fyrsta inngripið byggist á traustum gögnum, skýrum forsendum og mati á hugsanlegum langtíma- og heildaráhrifum. 

Með hliðsjón af vísindalegum grundvelli ákvarðanatöku, varúðarreglu og mati á heildarálagi samkvæmt 7.–10. gr. náttúruverndarlaga tel ég ekki nægilega sýnt fram á að rétt sé að mæla með undanþágu með þeim afdráttarlausa hætti sem gert er í fyrirliggjandi umsögn.  

Verði undanþága engu að síður veitt tel ég mikilvægt að hún verði bundin skýrum og mælanlegum skilyrðum um vöktun og viðbrögð við ófyrirséðum áhrifum og að hvers kyns endurtekning eða frekara inngrip í farveginn sæti nýju mati og leyfisveitingu. 

 

Fundi slitið kl. 11:45.

Fundargerð undirrituð rafrænt.