Afréttarmálanefnd Gnúpverja

2. fundur 23. ágúst 2026 kl. 20:00 - 21:30 Skarð
Nefndarmenn
  • Guðmundur Árnason
  • Gylfi Sigríðarson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
Fundargerð ritaði: Vilborg Ástráðsdóttir

Formaður setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð, sem eru ekki.

Vilborg ritar fundargerð.

 

1.  Fjallskilum ráðstafað


2. Fjallhross í Sandleit þurfa heyj. Athuga mætti með heyjbagga (tvær nætur).


3. Setja þarf ristahlið á línuveginn neðan við Sandafell. Hliðin sem eru þar eru sífellt opin.

Afréttamálanefnd óskar eftir því að sveitarstjóri gangi í málið.


4. Orðsending til fjallmanna. Þeir sem hafa undir höndum vesti frá fyrri fjallferðum – og
eru ekki að fara núna á fjall, eru vinsamlegst beðnir um að skila þeim sem allra fyrst,
hreinum og heilum, til skrifstofu sveitarfélagsins eða til fjallkóngs. Afréttamálanefnd
óskar eftir því að orðsendingin sé send út á samfélagsmiðla til að ná til fólks.


5. Rétt er að benda á að samkvæmt lögum þá er sérhverjum búfjáreiganda skylt að hafa
glöggt mark á fé sínu. Lömb skulu eyrnamörkuð fyrir lok 12.viku sumars. Nánar er
vísað í VIII. Kafla . Um meðferð ómerkinga og óskilafjár í lögum nr 6/1986 og
Fjallskilasamþykkt fyrir Árnessýslu austan vatna.


Fundi slitið 21:30