Afréttarmálanefnd Gnúpverja

1. fundur 18. júní 2026 kl. 13:00 - 14:15 Árnes
Nefndarmenn
  • Guðmundur Árnason
  • Gylfi Sigríðarson
  • Vilborg Ástráðsdóttir
Fundargerð ritaði: Vilborg Ástráðsdóttir

Formaður setur fund og óskar eftir athugasemdum við fundarboð, sem eru ekki. 

 

1. Afréttamálanefnd óskar eftir breytingu á formannshlutverkum. Guðmundur Árnason biðst undan formennsku og stingur upp á Gylfa Sigríðarsyni í staðin. Nefndin óskar eftir að erindið verði samþykkt af sveitarstjórn. Guðmundi er að öðru leyti þökkuð góð störf.

 

2. Girðingamál

  • Fara verður með girðingunni frá Sultartanga að Háafossi að viðbættu safngerðinu við Hólaskóg.
  • Einnig þarf að lagfæra gerðið við Skiptibrík við Dalsá
  • Einnig þarf að búa til tökuhólf við hesthúsið í Bjarnalækjarbotnum
  • Athugandi hvort það girðingarefni sem var girt í kringum íþróttamiðstöðina mætti nota í tökugerðin/næturhólfin
  • Fara þarf með girðingunni tvisvar að sumri og að auki ef tilefni er til.

Farið verður í könnunarleiðangur til að skoða hestagirðinguna við Hólaskóg og athuga hvort tilefni sé til að minnka hana. Kynna þarf fyrir öðrum ferðalöngum sem nýta Hólaskóg í sumar að safngirðingin sé einungis fyrir fjallhesta að hausti. Setja þarf skilti í hliðið og er formanni falið að ræða við sveitarstjóra um framkvæmd á málinu.

 

3. Fjárrekstur haust 2026

Mikilvægt er að kynna með öllum hætti fyrir umferð akandi ferðalanga, þessa daga sem fjárreksturinn verður niður frá afrétti og í réttir, til að minnka eins og kostur er agnúa. Formanni er falið að ræða við sveitarstjóra um framkvæmd á málinu.

 

4. Vegabætur á afrétti

  • Upphæð frá Vegagerðinni, til vegabóta inni á afrétti kemur í ljós í lok júní.
  • Á áætlun er að halda áfram þar sem frá var horfið í fyrra.

 

5. Nefndin er sammála um að hefja undirbúning að rétta fé á Búrfellstúni 2027. Kanna þarf og undirbúa allar formlegar forsendur sem og að hefja undirbúning kostnaðaráætlunar
Nefndin er sammála um að breytingarnar eru á forsendum dýravelferðar og öryggis manna og dýra.

 

6. Nefndin sammála um að fara ítarlega yfir fjallskil, kostnaðarliði, forsendur og fleira sem tengist fjallferðum.

 

7. Nefndin er alfarið á móti því að setja ónýtar heyrúllu í hestagirðinguna í Tjarnarveri í þeim tilgangi að græða upp land, þar sem gamalt heyj getur verið hættulegt fjallhrossum. Mikilvægt er að kanna ástandið og leita annarra leiða.

 

8. Nefndin óskar eftir upplýsingum um samning sveitarfélags við Hólaskóg og þá sérstaklega hvað varðar girðingamál í hestagirðingu.

 

9. Uppbygging fjallaskála á Gnúpverjaafrétti. Nefndin fagnar ötulu starfi áhugafélagsins Starkarðs og hefur hug á að heyra betur um fyrirhugaðar uppbyggingarhugmyndir félagsins fjallaskálanna á afréttinum.