Afréttarmálanefnd Gnúpverja

15. fundur 05. ágúst 2021 kl. 09:00
Nefndarmenn
  • Gylfi Sigríðarson
  • Arnór Hans Þrándarson
  • Lilja Loftsdóttir
  • Guðmundur Árnason
  • Sylvía Karen Heimisdóttir 

Fjallkóngurinn Guðmundur mun ekki getað sinnt stjórninni á hefðbundinn hátt í haust. Hann leggur því til að fyrverandi fjallkóngur leysi hann af þetta haustið eða hann sjálfur verði á bíl og stjórni þaðan. Lilja mun kanna hvort hún nái að losa sig úr vinnu til að fara í verkefnið.

Auglýsa þarf eftir umsóknum á fjall.  Covit mál voru rædd og er stefnt að því að fara á hefðbundinn hátt í smalamennskurnar, en fjöldi í réttu fer eftir samkomutakmörkunum sem þá verða í samfélaginu.

Arnór kynnti hugmynd um breytingu á eftirsafni. Farið verður af stað miðvikudag í vikunni eftir réttir en seinkað ef veðurspá er slæm. Miðvikudagur 5 fjallmenn, fimmtudagur 5 fjallmenn og 2 hjól, föstudagur 5 fjallmenn og 2 hjól, laugardagur 9 fjallmenn og 2 hjól, sunnudagur 6 fjallmenn og 2 hjól. Girðingamál rædd. Lagfæringar á girðingum í réttum og klára þarf breytingu á safngerði. Sylvía beðin að athuga við Vegagerðina hvort þeir komi ekki að girðingakaflanum sem liggur með veginum.  Girða þarf væng út frá safngerðinu í Hólaskógi svo auðveldara verði að reka inn í það.  Sláttur með vegum áður en safnið er rekið framm hefur hjálpað mikið.Sylvía mun tala við Strá ehf. með það verk.

Nýr kamar í Tjarnarver er klár og þarf að komast innúr. Ný útidyrahurð í Gljúfurleit ætti að koma í næstu viku og þarf  að koma henni  í fyrir veturinn.

Umræða varð um ferðahestagirðingarnar í Hólaskógi hvort það væri staðarhaldara eða sveitarinnar að sjá um viðhald á þeim.

Fundi slitið:  10:10

Fundarritari: Lilja Loftsdóttir