Vinnuskólinn 2020 - Umsóknarfrestur til 15. maí n.k.

Víkingar á landnámsdegi
Víkingar á landnámsdegi

Ungmennum, með lögheimili í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem fædd eru 2005  og 2006 gefst kostur á að starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Vinnuskólinn hefst 8. júní og stendur í 8 vikur eða til og með 30. júlí 2020. Unnið verður fjóra daga í hverri viku, mán.- fim. kl. 08-14. Skylt er þó að taka frí eina viku á tímabilinu. Hámarksfjöldi vinnufólks í einu er átta. Ef fjöldi vinnufólks verður meiri, verður starfstíminn skipulagður með það í huga. Í ágúst gefst þeim kostur sem hafa áhuga, að vinna eftir þörfum og samkomulagi. Heitur matur er framreiddur í hádeginu en koma þarf með nesti í kaffitíma fyrir hádegi.

 

Umsóknarfrestur er til 15. maí.  Skráning fer fram hjá Bjarna Jónssyni umsjónarmanni vinnuskólans, bjarni@skeidgnup.is sími 893-4426 eða á skrifstofu sveitarfélagsins: Netfang: skeidgnup@skeidgnup.is -  sími 486-6100.