Viðvörun og veðuspá dagsins frá Veðurstofunni

Vetrarveður í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Vetrarveður í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Veðurstofan hefur sent frá sér meðfylgjandi Viðvörun (sjá viðhengi). Veðurspá og  viðvörun sjá hér   Veðurstofunni, sunnudaginn 6. desember 2015 kl. 12:00 Langt suður í hafi er nú lægð í myndun. Hún dýpkar með eindæmum hratt í nótt og er þrýstingi í miðju hennar spáð 944 mb seint annað kvöld og á hún þá að vera stödd suður af Reykjanesi. Á þeirri stundu verður 1020 mb hæðarhryggur skammt N af Scoresbysundi á austurströnd Grænlands og heldur hann á móti lægðinni. Saman valda þessi tvö veðrakerfi vindstyrk af styrk ofsaveðurs eða fárviðris yfir Íslandi.

Stutt spá fyrir landið mánudaginn 7. desember Hvessir á morgun og dregur úr frosti, fyrst sunnantil. Austan 20-25 og snjókoma sunnanlands eftir hádegi. Víða ofsaveður eða fárviðri á landinu um kvöldið, 25-35 m/smeð slyddu eða snjókomu. Hiti um frostmark annað kvöld, en 0 til 5 stig sunnan heiða. Viðvörun Spáð er ofsaveðri eða fárviðri á landinu síðdegis á morgun og annað kvöld, fyrst S-lands.  Nánar um útlitið:

Fárviðrið skellur á sunnanvert landið eftir kl. 15 á morgun. Eftir kl. 19 má búast við ofsaveðri eða fárviðri um allt land. Með fylgir úrkoma og verður hún á formi snjókomu og því má búast við glórulausum byl. Búast má við miklu úrkomumagni um landið austanvert. Seint annað kvöld er útlit fyrir að það hlýni nægilega sunnantil á landinu til að úrkoma verði á formi slyddu eða rigningar. Til að setja væntanlegt veður í samhengi skal bent á að spáin fyrir morgundaginn hljóðar uppá miklu verra veður en voru núna í vikunni sem er að líða (þriðjudag, föstudag, laugardag). Ofsaveður eru 11 gömul vindstig (skali Beaufort) og er þá meðalvindhraði meiri en 28m/s. Fárviðri eru 12 gömul vindstig og er þá meðalvindhraði meiri en 32 m/s. Sjá fróðleiksgrein (“Nöfn vindstiga og greining veðurhæðar”):
http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1098