Verklagsreglur vegna smithættu af sorpi og úrgangs vegna heimsfaraldurs

Göngubrú við Stöng
Göngubrú við Stöng

Hér eru verklagsreglur  vegna smithættu fyrir starfsmenn sem vinna við sorpflokkun -  en við erum mjög mörg að handleika og fara með sorp og dýraleifar á gámasvæðin og við ættum að kynna okkur þessar leiðbeiningar og nota þegar það á við.

Þessar verklagsreglur eiga við um starfsmenn sem vinna við meðhöndlun úrgangs, þ.m.t. sorphirða, flutningur, flokkun og förgun. Verklagsreglurnar taka gildi þegar sýkingar eru orðnar almennar í heimahúsum eða þegar Umhverfisstofnun gefur út tilmæli um að vinna skuli eftir reglunum. Nánari upplýsingar um smitvarnir má finna á heimasíðu Landlæknis.

Notkun persónuhlífa

Nota skal persónuhlífar við meðhöndlun úrgangs eftir því sem við á. Viðeigandi persónuhlífar eru t.d.:

  • Einnota hanskar
  • Einnota hlífðarfatnaður, t.d. einnota vinnugallar.
  • Hlífðarfatnaður (utanyfirgalli)
  • Hlífðarhanskar

Meðhöndlun úrgangs

Starfsmenn skulu af fremsta megni gæta varúðar við meðhöndlun úrgangs.

  • Sorpílát skulu ekki opnuð heldur flutt beint í sorphirðubíla.
  • Forðist að snerta sorp.
  • Forðist snertingu við augu, nef og munn.

Frágangur að lokinni meðhöndlun úrgangs

  • Einnota persónuhlífar fjarlægðar og settar í poka til förgunar.
  • Ef notaðar eru fjölnota persónuhlífar skal þrífa þær og sótthreinsa eftir notkun.
  • Mikilvægt er að þvo og sótthreinsa hendur reglulega.
  • Sótthreinsa skal álagsfleti eftir því sem við á.