Velheppnuð árshátíð Þjórsárskóla þann 11. mars s.l.

Dæturnar sjö og saga þeirra -  er ein af þjóðsögum
Dæturnar sjö og saga þeirra - er ein af þjóðsögum "Sjöstirnisins sem við sjáum á himni.

Árshátíð Þjórsárskóla var  haldin  föstudagskvöldið 11. mars,  í Félagsheimilinu Árnesi, kl. 20:00.  Halla Guðmundsdóttir leikkona samdi og leikstýrði verki sem helgað var  indíánum og  landnemum í Vesturheimi og  skyggnst  var inn í líf þeirra.  Gleði skein úr hverju andliti leikenda og áhorfenda en allir nemendur tóku þátt í sýningunni ásamt kennurum og starfsfólki. 

Glæsileg, litskrúðug og velheppnuð sýning með söngvum og tónlist. Foreldrafélag skólans sá um veitingar á eftir  og var það álit gesta að þetta hefði verið mjög skemmtileg og glæsileg árshátíð.