Unmennaráðstefna 20. mars 2020

Ungmenni í vinnu
Ungmenni í vinnu

Ungmennaráð UMFÍ stendur nú í ellefta sinn fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði. Ráðstefnan fer fram 1. – 3. apríl í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Yfirskrift ráðstefnunnar er Lýðræðisleg áhrif. Hvar, hvenær og hvernig hefur ungt fólk áhrif?  Ráðstefnan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16 - 25 ára. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og komast aðeins 80 þátttakendur að. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. UMFÍ styrkir 80% af ferðakostnaði. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á miðvikudeginum og til baka á föstudeginum. Skila þarf inn kvittunum til þess að fá styrk fyrir ferðakostnaði.

Á viðburðinum er lögð áhersla á að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks í leik og starfi, gefa einstaklingum verkfæri og þjálfun til þess að hafa aukin áhrif í sínu nær samfélagi.

Ungmennaráð UMFÍ hefur veg og vanda að ráðstefnunni.

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Kynningar, málstofur, hellings hópefli og önnur skemmtilegheit.

Dagskrá verður birt innan tíðar.

Athygli er vakin á því að viðburðurinn er með öllu vímuefnalaus, á það einnig við um rafsígarettur.

Skráning stendur til 20. mars 2020. Smelltu hér til þess að skrá.

Fylgist með nánari upplýsingum á www.umfi.is og á heimasíðu ráðstefnunnar.

 Kynningarbréf.

 

Fyrir hönd ungmennaráðs UMFÍ,

Ragnheiður Sigurðardóttir

Landsfulltrúi

Sími: (+354) 540 2907 / 8671147