Félagsheimilið og Leikskólinn í Brautarholti
Sveitarfélagið Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar eftir öflugum einstaklingi í starf umsjónaraðila með Skeiðalaug ásamt því að hafa umsjón með félagsheimilinu í Brautarholti.
Um er að ræða fast starf til framtíðar en framundan er mikil efling á starfsemi Skeiðalaugar. Gera má ráð fyrir að starfið þróist næstu 1-2 árin. Starfshlutfall er 50-100%.
Umsækjandi þarf að hafa brennandi áhuga á uppbyggingu Skeiðalaugar og starfsemi hennar til framtíðar, hafa ríka þjónustulund, góða samskiptahæfileika og mikinn áhuga á að vinna með fólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sundlaugarvarsla og önnur verkefni tengdu starfinu, s.s. eftirlit, afgreiðsla og þrif.
- Skipulagning vakta.
- Ábyrgð á gæðum og öryggi starfseminnar.
- Þróun á nýrri þjónustu.
- Umsjón og húsvarsla með Skeiðalaug og félagsheimilinu Brautarholti.
- Umsjón með útleigu, undirbúningur viðburða í félagsheimilinu Brautarholti og frágangur eftir viðburði.
- Upplýsingagjöf til viðskiptavina og samskipti við þá.
- Samskipti við skóla, leikskóla, ungmennaráð, ungmennafélög og aðra hagaðila.
- Vinna með sveitarstjóra að verkefnum sem koma upp í tengslum við rekstur Skeiðalaugar og félagsheimilisins Brautarholti.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur og menntun:
- Lipurð og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Hugmyndaauðgi, frumkvæði og drifkraftur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Nákvæmni og skipuleg vinnubrögð.
- Sjálfstæði og fumkvæði.
- Námskeið í skyndihjálp.
- Hreint sakavottorð.
- Almenn ökuréttindi.
- Önnur reynsla sem nýtist í starfi.
Starfskjör og laun eru í samræmi við samninga Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hvetur einstaklinga óháð kyni til að sækja um ofangreint starf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Haraldur Þór Jónsson, sveitarstjóri í síma 486-6100.
Umsóknum ber að skila á netfang sveitarstjóra haraldur@skeidgnup.is fyrir 10. desember nk.