- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Þriðjudaginn 21 apríl tóku íbúar í Brautarholti sig til, skipulögðu og héldu tiltektardag í Brautarholti.
Mættu þar saman börn og fullorðnir og gengu um hverfið með það í huga að gera umhverfi sitt snyrtilegt. Var tínt upp alls konar rusl sem kom í ljós og kerra fyllt.
Að lokum grilluðu þau pylsur saman.
Þetta er frábært framtak hjá íbúum í Brautarholti og algjörlega til fyrirmyndar.
Takk fyrir kæru íbúar.
