Stöður kennara við Þjórsárskóla skólaárið 2026-2027

Lausar eru til umsóknar eftirfarandi stöður kennara við Þjórsárskóla.

Stöður:

  • Umsjónarkennari á yngsta stigi
  • Umsjónarkennari á miðstigi
  • Umsjónarkennari á unglingastigi
  • Hönnun og smíði 35%
  • Útikennsla 20%
  • Heimilisfræði 35%
  • Tónmenntakennsla 20%
  • Íþrótta og sundkennsla 80-100%

 

Hæfnikröfur:

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari / í Med námi.
  • Áhugi á að starfa með börnum.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á skólaþróun.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla af teymisvinnu er kostur.
  • Mjög góð íslenskukunnátta.

 

Þjórsárskóli er heildstæður skóli með um 65-70 nemendur í 1.-10. bekk. Mikil áhersla er á útinám og að þróa skólastarf sem að kemur til móts við nemendur með einstaklingsbundnum hætti. Skólinn er staðsettur í Árnesi um 30 mínútur frá Selfossi.

Við skólann er verið að byggja fullbúið íþróttahús sem tekið verður í notkun fyrir skólann haustið 2026. Húsið býður upp á fjölbreytta og metnaðarfulla kennslu og spennandi aðstöðu fyrir íþróttakennara. Skólinn er vel búinn hvað varðar aðstöðu í nýju verknámshúsi.

Kennsluskylda í umsjón er sveigjanleg og umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við skólastjóra.

Við skólann er mikil útikennsla og áhersla á ferðir og ferðalög. Mikilvægt er að umsækjendur séu tilbúnir til að taka þátt í slíku starfi og best ef að viðkomandi hefur mikinn áhuga á slíku.

Við skólann starfar metnaðarfullur mannauður og viljum við bæta við þann góða hóp. Mikilvægt er að umsækjendur séu jákvæðir og góðir í samskiptum.

Fólk, óháð kyni, er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 24. apríl nk.

Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Finnbogason, skólastjóri, sími 895 2409 netfang : gudmundur@thjorsarskoli.is Skriflegar umsóknir ásamt ferilskrá, prófskírteinum og upplýsingum um fyrri störf sendist í tölvupósti á gudmundur@thjorsarskoli.is.