Starfskraftur óskast við Félagslega heimaþjónustu

Frá öskudegi í Árnesi
Frá öskudegi í Árnesi

Velferðþjónusta Árnesþings óskar eftir starfsfólki til starfa við félagslega heimaþjónustu í Uppsveitum og Flóa. 

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:

  • Almenn heimilisþrif
  • Aðstoð við persónulega umhirðu

Helstu hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og skipulagshæfni
  • Hæfni til að starfa sjálfstætt
  • Skilyrði að umsækjandi hafi reynslu af almennum heimilisstörfum
  • Nauðsynlegt að hafa þokkalegt vald á íslenskri tungu.

Umsækjandi þarf að hafa bíl til umráða. Greitt  er samkv. kjarasamningum FOSS.

Umsóknarfrestur er til 25.apríl nk.

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir í tölvupósti á sigrun@laugaras.is

eða hafið samband í síma 480-1180