Sprengingar við Hvammsvirkjun

Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun
Tölvugerð mynd af Hvammsvirkjun

Tilkynning frá framkvæmdaaðila Hvammsvirkjunnar:

Vegna jarðvegsvinnu við undirbúning Hvammsvirkjunar má reikna með að verktakar þurfi á næstunni að sprengja berg á svæðinu. Búast má við að einhverjar sprengingar verði flesta daga í sumar, á bilinu frá kl. 8 á morgnana til kl. 19 á daginn. Sprengingar um helgar verða takmarkaðar eins og unnt er.
Við biðjumst velvirðingar á því ónæði sem þessar óhjákvæmilegu sprengingar geta valdið og munum kappkosta að láta íbúa í nágrenni framkvæmdanna vita af þeim fyrirfram, eftir því sem kostur er.
Allar frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins: https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun eða með því að smella hér: Hvammsvirkjun