SKIPULAGSAUGLÝSING 16. APRÍL 2020

Önnur tveggja vindmylla á Hafinu í SkeiðGnúp
Önnur tveggja vindmylla á Hafinu í SkeiðGnúp

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL  BLÁSKÓGABYGGÐ, GRÍMSNES-OG GRAFNINGSHREPPI, HRUNAMANNAHREPPI, SKEIÐA-OG GNÚPVERJAHREPPI, FLÓAHREPPI OG ÁSAHREPPI   Aðalskipulagsmál.

 Samkvæmt  1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og í samræmi við 4.2. grein skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 er hér kynnt lýsing að eftirfarandi endurskoðun aðalskipulags:

  1. Endurskoðun aðalskipulags Ásahrepps 2020-2032. Lýsing verkefnis.

Hreppsnefnd Ásahrepps samþykkti á fundi sínum 23.3.2020 að kynna lýsingu fyrir nýtt endurskoðað aðalskipulag Ásahrepps 2020-2032. Ásahreppur er vestasta sveitarfélagið í Rangárvallasýslu. Stærð skipulagssvæðis í byggð er um138 km2 og skipulagssvæði á Holtamannaafrétti er um 2800 km2. Sveitarfélagið er fremur láglent með lágum holtum. Afrétturinn er fremur flatlendur með ávölum bungum. Gróðursæld er á láglendi og má segja að þar sé nær algróið graslendi, mýrlendi og mólendi. Á afréttinum eru lítt gróin svæði sem bera merki uppblásturs og nálægðar við eldfjöll. Ekkert þéttbýli er skilgreint í Ásahreppi. Leiðarljós hreppsnefndar Ásahrepps í aðalskipulagsvinnunni er að skapa góð skilyrði fyrir mannlíf og atvinnulíf til framtíðar og gera búsetu eftirsóknarverða. Þetta verði m.a. útfært með skynsamlegri landnýtingu þar sem stuðlað er að sjálfbærri nýtingu vistkerfa og bindingu kolefnis. Orkuframleiðsla sé vistvæn og stuðlað að grænum samgöngum og útivistarmöguleikum.

Skipulags- og matslýsing 

Deiliskipulagsmál

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum:

  1. Spóastaðir. Samræming deiliskipulags. Bláskógabyggð.
    Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 5. mars 2020, breytingu á deiliskipulagi frístundasvæðis við Dynjandisveg í landi Spóastaða í Bláskógabyggð. Breytingin nær til um 35ha svæðis og 40 lóða og tekur til breytinga á nýtingarhlutfalli og byggingarmagni á lóðum. Nýtingarhlutfall lóða frá nr. 1-23 verður allt að 0.045 og á lóðum nr. 24-46,allt að 0.03. Heimilt verður að byggja allt að 40 m2 aukahús/gestahús og allt að 15m2 smáhýsi á lóðum.
    Við gildistöku deiliskipulagsbreytingar fellur úr gildi núgildandi deiliskipulag við Dynjandisveg.
  2. Apavatn 2 L167621. Aphóll; 15 lóðir; Frístundabyggð F19. Bláskógabyggð.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti þann 27. febrúar 2020, deiliskipulagstillögu sem tekur til 27,25 ha lands norðan við og samsíða Apá í Bláskógabyggð. Á svæðinu eru þegar stofnaðar lóðir og nokkur eldri frístundahús. Lóðamörk flestra lóða eru óbreytt sem aðilar gerðu með sér og fékk endanlega afgreiðslu 4. júní 2015. Í tillögu að deiliskipulagi skiptast 2 lóðir upp í fleiri lóðir sem allar eru á bilinu 5.000 til 5.909 fermetrar að stærð. Aðkoma að svæðinu er um tvo eldri aðkomuvegi sem tengjast inn á Laugarvatnsveg.

 Uppdráttur 

  1. Laugardælur 4 og 5. Flóahreppi

Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti 5. nóvember 2019, tillögu að deiliskipulagi sem tekur til tveggja lóða fyrir íbúðarhús í landi Laugardæla í Flóahreppi. Þær munu fá heitið Laugardælur 4. stærð 1345m2, og Laugardælur 5. stærð 1997m2. Heimilt verður að byggja allt að 300m2 á hvorri lóð og á lóð 5 heimild til að byggja auk íbúðarhúss, véla- og útihús. Aðkoma að lóðunum er um Laugardælaveg nr. 3020.

Uppdráttur 

————————————————————————————————————————————–

Niðurstaða sveitarstjórnar auglýst skv. 3.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 

 

Kerið 1, L172724. Deiliskipulag bílastæða, gestastofu og þjónustubyggingar. Grímsnes- og Grafningshreppi.

Lagt fram á fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps dags. 19.2.2020, til umfjöllunar bréf skipulagsstofnunar dags. 29. nóvember 2019, þar sem Skipulagsstofnun gerir athugasemdir í þá veru að deiliskipulagstillagan sé í ósamræmi við gildandi aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020. Vitnað er í kafla 17 um hverfisverndarsvæði, í greinargerð aðalskipulags, að öll mannvirkjagerð og jarðrask sé með öllu bannað í grennd við náttúruminjar. Í umsögn Skipulagsstofnunar dags, 29.11.2019, vegna tillögu að deiliskipulagi Kersins er gerð athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda vegna ósamræmis við aðalskipulag. Að mati Skipulagsstofnunar er deiliskipulagstillagan ekki í samræmi við ákvæði sem gilda um hverfisverndarsvæði en þar segir: Kerið í Grímsnesi (H1), Kerhóll í Grímsnesi (H2) og ósnortið hraun í Öndverðarnesi II (H3) verði vernduð sem einstakar landslagsgerðir og náttúrufyrirbæri. Öll mannvirkjagerð og jarðrask er með öllu bannað í grennd við náttúruminjarnar.

Bókun/rökstuðningur: Á gildandi aðalskipulagsuppdrætti sveitarfélagsins eru mörk hverfisverndarsvæðisins ill greinanleg. Við vinnslu deiliskipulagstillögunnar var því kallað eftir stafrænum gögnum frá skipulagshönnuði aðalskipulagsins til að ganga úr skugga um hvar mörk hverfisverndarsvæðisins liggja og eru þau sýnd á deiliskipulagsuppdrætti. Orðalag aðalskipulagsins um hverfisverndarsvæði H1, þ.e. að mannvirkjagerð og jarðrask sé með öllu bannað ?í grennd? við náttúruminjar er ónákvæmt. Við vinnslu deiliskipulagstillögunnar var ekki litið svo á að göngustígar með tilheyrandi útsýnispöllum teldust mannvirkjagerð eða jarðrask sem ógnað gæti jarðminjunum. Þvert á móti væri um að ræða aðgerðir sem styddu við markmið hverfisverndarinnar um að standa vörð um ?einstakar landslagsgerðir og náttúrufyrirbæri? . Til þess að fylgja þessu markmiði eftir voru í deiliskipulagstillögu settir ítarlegri skilmálar um hverfisverndarsvæðið til verndunar þess. Uppbygging við Kerið skv. tillögu að deiliskipulagi er að öllu leyti utan hverfisverndarsvæðisins, að undanskildu viðhaldi á núverandi göngustígum og útsýnispalli, sem og nýjum útsýnispalli/-pöllum til að verjast ágangi. Þá er aðkoma inn á svæðið færð austar, fjær Kerinu, ásamt bílastæðum og öðrum mannvirkjum. Í kafla 5.2. í greinargerð deiliskipulagstillögunnar er gerð grein fyrir áhrifum tillögunnar á umhverfið og ásýnd m.t.t. staðsetningarkosta. Þar kemur m.a. fram að gestastofu og bílastæði var valinn staður fjær Kerinu en núverandi bílastæði. Var það m.a annars unnið í samráði við Vegagerðina til að tryggja betra umferðaröryggi, og þar með færslu á aðkomu inn á svæði. Núverandi aðkoma að Kerinu er á versta hugsanlega stað (efst uppi á hól) þar sem iðulega hafa myndast umferðarteppur og oft legið við slysum. Nýju mannvirkin eru staðsett sem næst þjóðveginum, á svæði sem þegar hefur verið raskað að talsverðu leyti. Handan Biskupstungnabrautar er sumarbústaðabyggð og uppbygging við Kerið því í grennd við aðra byggð. Almennir skilmálar deiliskipulagstillögunnar s.s. um byggingar, efnisnotkun, frágang, lýsingu, lóðafrágang, inniviði og gróður miða allir að því að vernda náttúrulegt umhverfi Kersins og tryggja vandaða uppbyggingu á svæðinu. Áframhaldandi vönduð uppbygging við Kerið styður við stefnu aðalskipulagsins um verndun svæðisins ásamt því að gera fólki kleift að njóta þeirra verðmæta sem Kerið er sbr. stefnu um náttúruverndarsvæði í kafla 15 aðalskipulags, en þar segir m.a.: Almennt verði stuðlað að verndun helstu náttúrufyrirbæra í sveitarfélaginu en jafnframt verði fólki gert kleift að njóta þessara verðmæta. Ekki er stefnt að friðlýsingu svæða á náttúruminjaskrá en lagt til að valin svæði og náttúrufyrirbæri falli undir hverfisvernd. Ekki er litið á svæði á náttúruminjaskrá sem verndarsvæði í heild sinni en lagt til að valin svæði og náttúrufyrirbæri falli undir hverfisvernd. Á grunni ofangreinds þá er það niðurstaða Grímsnes- og Grafningshrepps að deiliskipulag Kersins sé í samræmi við Aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps 2008-2020 og þar með ákvæði sem þar eru um hverfisverndarsvæði. Ákvæði sem nefnd eru í umsögn Skipulagsstofnunar eiga eingöngu við hverfisvernduð svæði, sem deiliskipulagið uppfyllir. Grímsnes- og Grafningshreppur telur því að misskilnings hafi gætt í umsögn Skipulagsstofnunar þegar segir að deiliskipulagstillagan sé ekki í samræmi við ákvæði sem gilda um hverfisverndarsvæði. Þess er því farið á leit við Skipulagsstofnun að stofnunin endurskoði umsögn sína á grunni ofangreinds og geri ekki athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

 

Ofangreindar skipulagslýsingar/skipulagstillögur liggja frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast lýsingar og tillögur á vefslóðinni http://www.utu.is. Þá eru gögnin aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna:  https://www.blaskogabyggd.ishttps://www.gogg.ishttps://www.fludir.is;

https://skeidgnup.ishttps://www.floahreppur.ishttp://asahreppur.is/

Skipulagslýsing nr. 1 er í kynningu frá 16. apríl til 14. maí 2020, en tillögur nr. 2 – 4 eru í auglýsingu frá 16. apríl til 28. maí 2020.  Athugasemdir og ábendingar við lýsingu nr. 1, þurfa að berast skipulagsfulltrúa eigi síðar en 14. maí 2020, en fyrir tillögur nr. 2 – 4  eigi síðar en 28. maí 2020.

Athugasemdir og ábendingar og skulu vera skriflegar.

 

Vigfús Þór Hróbjartsson

Skipulagsfulltrúi UTU

vigfus@utu.is