Skipulagsauglýsing

Hlaupið í Dalsá
Hlaupið í Dalsá

Samkvæmt 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt skipulagslýsing eftirfarandi skipulagsáætlunar:

  1. Kílhraun land L191805; Úr landbúnaðarsvæði í iðnaðarsvæði; Nýjar heitavatnsborholur; Aðalskipulagsbreyting – 2610003

Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti á fundi sínum þann 21. október að kynna skipulagslýsingu á aðalskipulagi fyrir Kílhraun land L191805, í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Í breytingunni felst að afmarkað verði um 12,2 ha iðnaðarsvæði vegna fyrirhugaðrar heitavatnsöflunar, þar með talið nýrra heitavatnsborhola og mannvirkja og lagna þeim tengdum.

 

Ofangreind skipulagstillaga liggur frammi til kynningar á skrifstofu skipulagsfulltrúa, Hverabraut 6, Laugarvatni á skrifstofutíma embættisins. Að auki er hægt að nálgast tillögur á vefslóðinni www.utu.is og á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar skipulagsgatt.is/.

Málið er skipulagsmál í kynningu frá 29.10.2026 með athugasemdarfresti til og með 20.11.2026.

Athugasemdum og ábendingum skal skila inn á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar Skipulagsgáttin undir viðeigandi máli. Einnig má koma á framfæri athugasemdum og ábendingum skriflega á skrifstofu UTU Hverabraut 6, Laugarvatni eða með tölvupósti á netfangið skipulag@utu.is.

Fyrirspurnir má senda á netfang UTU skipulag@utu.is.

Sigríður Kristjánsdóttir

Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og Tæknisviðs Uppsveita