Skil á framboðum til sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026

Yfirkjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps tók á móti tveimur framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga 2026, þann 10. apríl á skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi milli kl. 11.00 og 12.00. Meðmælendalistum var skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á island.is. Kjörstjórn fór í framhaldi yfir gögnin og úrskurðaði bæði framboðin gild.

Framboðslistarnir sem bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga 2026 í Skeiða- og Gnúpverjahreppieru eru tveir, E-listi uppbyggingar og L-listi, samvinnulistinn.

Hér má sjá listana, raðað í stafrófsröð eftir listabókstaf.

E-Listi uppbyggingar

  1. Gunnar Örn Marteinsson, ferðaþjónustubóndi, Steinsholti 2.
  2. Ingibjörg Sæunn Jónsdóttir, líffræðingur, Holtabraut 25.
  3. Sigurður Kristmundsson, bóndi, Haga.
  4. Sigríður Björk Marinósdóttir, aðstoðarleikskólastjóri/bóndi, Þrándarholti.
  5. Gylfi Sigríðarson, bóndi, Steinsholti 1.
  6. Ingvar Hersir Sveinsson, bóndi, Reykjahlíð.
  7. Elín Anna Lárusdóttir, kennari, Holtabraut 27.
  8. Hannes Ólafur Gestsson, ferðaþjónustubóndi/skólabílstjóri, Kálfhóli 2.
  9. Guðmundur Arnar Sigfússon, verktaki, Vestra-Geldingaholti.
  10. Tanja Rún Jóhannsdóttir, dýralæknir, Holtabraut 18.

 

L-listi Samvinnulistinn

  1. Haraldur Þór Jónsson, oddviti, Hraunvöllum.
  2. Vilborg María Ástráðsdóttir, myndlistakennari, Skarði 1B.
  3. Harpa Dís Harðardóttir, skógræktarráðgjafi, Björnskoti.
  4. Björgvin Þór Harðarson, bóndi, Laxárdal II A.
  5. Birna Þorsteinsdóttir, fv. bóndi, Húsatóftum 1a.
  6. Guðmundur Árnason, fjallkóngur, Haga 1.
  7. Oddrún Ýr Sigurðardóttir, þroskaþjálfi/garðyrkjubóndi, Holtabraut 10.
  8. Ingvar Þrándarson, bóndi/smiður, Þrándarholti 4.
  9. Jóhannes Hlynur Sigurðsson, skógarvörður/bóndi, Ásólfsstöðum 1a.
  10. Bjarni Hlynur Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri, Hraunbrún.

 

Kjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Helga Kolbeindóttir

Eggert Jóhannesson

Helga Guðlaugsdóttir