Skemmtileg vinna í boði- hentug fyrir skólafólk

Búrfell í Þjórsárdal
Búrfell í Þjórsárdal

Skóla og velferðarþjónusta Árnesþings leitar að ábyrgum einstaklingum til þess að vera liðveitendur. 

Hvað gera liðveitendur?

Félagsleg liðveisla er fyrir einstaklinga með fötlun sem þurfa perónulegan stuðning og aðstoð sem einkum miðar að því að rjúfa félagslega einangrun t.d. aðstoð til að njóta menningar og félagslífs.

Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri, ábyrgir og jákvæðir, hafa áhuga á að vinna með börnum eða einstaklingum með fötlun og hafa bílpróf og aðgang að bíl.

Frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Vilhjálmsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi í síma 480-1180 eða í netfangið gudbjorg@arnesthing.is  -Umsóknir berist á sama aðila.