- Stjórnsýsla
- Þjónusta
- Íþróttir og útivist
- Fréttir
- Mannlíf & menning
Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að öflugum og skipulögðum aðila til að vinna við launavinnslu og bókhald í 70-100% starfi.
Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið starf og er leitast eftir nákvæmum og talnaglöggum einstaklingi með áhuga á fjármálatengdum störfum.
Starfstöð er á skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi.
Upplýsingar um starfið veitir Sylvía Karen Heimisdóttir, sveitarstjóri á netfangið sylviakaren@skeidgnup.is
Umsóknir skulu berast á netfangið sylviakaren@skeidgnup.is og skal umsókn fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar 2026.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar einstaklingum óháð kyni.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.