Merki Sveitarfélags ársins
Skeiða- og Gnúpverjahreppur hlaut í gær viðurkenningu í verkefninu sveitarfélag ársins 2026 sem byggir á líðan og ánægju starfsfólks og starfsumhverfi þess. Er þetta þriðja árið í röð sem sveitarfélagið fær viðurkenningu í verkefninu.
Útnefningin byggir á niðurstöðum könnunar sem Gallup framkvæmdi á vegum Mannauðssjóðsins Heklu og var send var til starfsfólks sveitarfélagsins.
Könnunin sem er vinnumarkaðskönnun er ætlað að hvetja stjórnendur til að veita starfsumhverfinu meiri athygli og er mikilvægt verkfæri í því að vera vakandi fyrir bættum starfsskilyrðum.
Þættir sem skoðaðir voru eru m.a. stjórnun sveitarfélagsins, samskipti og starfsandi, líðan starfsfólks í starfi og mat þeirra á starfskjörum, aðstöðu og aðbúnaði.
Undanfarin ár hefur verið mikill uppbygging í sveitarfélaginu og töluverðar breytingar orðið á starfsumhverfi okkar starfsfólks. Það er ánægjulegt fyrir okkur hjá sveitarfélaginu Skeiða- og Gnúpverjahreppi að fá svo góða niðurstöðu og hvetur okkur stjórnendur til að viðhalda því starfsumhverfi sem er í dag innan okkar sveitarfélags sem og að ráðast í umbótaverkefni þar sem þess er þörf.
Við metum starfsfólk okkar mikils og eru þeim færðar góðar þakkir fyrir metnað í starfi og heiðarlega endurgjöf. Það er fyrst og fremst þeim að þakka að hægt er að veita þá góðu þjónustu sem sveitarfélagið vill standa vörð um.
Innilega til hamingju öll