Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni!

Reglur um sóttkví gilda líka úti á landi  Að gefni tilefni vill lögreglustjórinn  á Suðurlandi og Almannavarnir á Suðurlandi taka það fram að það gilda sömu reglur um sóttkví úti á landi og í þéttbýli. Fólk þarf að halda sig heima. Sjá hér að neðan. 

Þessi orðsending er áframsend frá Sambandi sveitarfélaga

Staðfesting á sóttkví

Starfsmenn í sóttkví samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda geta nú sjálfir skráð upplýsingar um það inn á vefinn heilsuvera.is og fengið vottorð þar að lútandi. Vottorðin eru án endurgjalds. Vakin er athygli á því að skráning í heilsuveru krefst þess að notandi sé með rafræn skilríki.

Þeir sem hafa ekki rafræn skilríki og geta ekki nýtt sér heilsuveru eiga að hafa samband við heilsugæslustöðina sína. Heilsugæslustöðin kemur upplýsingum um sóttkví viðkomandi til sóttvarnalæknis. Þar er hægt að óska eftir staðfestingu á sóttkví með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@landlaeknir.is og skrá í efnislínu: Staðfesting á sóttkví.

Það má sjá hvernig skráningarformið lítur út á vefnum heilsuvera.is sem allir með rafræn skilríki geta nýtt sér til að skrá sig í sóttkví og sækja sér vottorð þess efnis.

Þetta kem­ur fram á vef Stjórn­ar­ráðsins.